lyfjalög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni kærlega fyrir hans andsvar. Það hefur verið gott að ræða þessi mál við hann hérna í hliðarsölum við ýmis tækifæri og ég heyri að við erum sammála um margt þegar kemur að markmiðinu en kannski deilum við um eitthvað þegar kemur að útfærslunni. Hv. þingmaður spyr út í það að hér sé í raun verið að veita mjög almenna heimild. Já, það er það sem við vildum leggja til, að það væri í rauninni þessi opna heimild. Það væri þá eitthvað að mínu mati fyrir nefndina að skoða hvort til að mynda Lyfjastofnun væri þá frekar veitt heimild til að taka einhver lausasölulyf af listanum frekar en að það sé hlutverk Lyfjastofnunar að setja lyf á listann sem eru heimil. Mér hugnast miklu frekar sú nálgun. En þetta er réttmæt athugasemd sem hv. þingmaður kemur með.
Jafnframt myndum við að sjálfsögðu skoða hvernig þetta er í okkar nágrannaríkjum. En eins og ég segi, ég hallast frekar að því að það sé almenn heimild, að það sé þá hægt að taka út lausasölulyf ef sterk rök hníga að því að þau ættu ekki að vera í lausasölu utan lyfjaverslana frekar en hitt.
Varðandi það að ég tók Patreksfjörð sem dæmi þá er ég mjög meðvitaður um þessar áhyggjur, þ.e. ef útibúið t.d. á Patreksfirði stæði frammi fyrir samkeppni við matvöruverslunina á Patreksfirði um lausasölulyf gæti það orðið til þess að sú verslun lokaði. Við þurfum náttúrlega að skoða hversu hátt hlutfall lausasölulyfin eru af tekjugrunni þess útibús en á sama tíma væri ég mjög opinn fyrir því að skoða hvaða kannski séríslensku kvöðum sem hvíla á apóteki við gætum létt af, t.d. sem snúa að kröfu um tvöfalda mönnun.