158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

lyfjalög.

190. mál
[17:23]
Horfa

Flm. (Ingvar Þóroddsson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni kærlega fyrir hans síðara andsvar. Hv. þingmaður talar um aðgengi á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Auðvitað er ég sjálfur mikið að velta fyrir mér t.d. aðgengi úti á landi. Hv. þingmaður talar um landsdekkunina eins og hún er í dag og þá geri ég ráð fyrir að hv. þingmaður sé að tala um allar lyfjaverslanir landsins og síðan þær verslanir sem hafa heimild til að selja lausasölulyf og sú dekkun lítur ágætlega vel út. Það þarf náttúrlega líka að hafa í huga opnunartímann og það var þess vegna sem ég tók Patreksfjörð sem dæmi en það væri náttúrlega hægt að taka fjölmörg önnur dæmi sem eru kannski sambærileg við Patreksfjörð.

Á Akureyri sem dæmi er náttúrlega hellingur af lyfjaverslunum og síðan eru matvöruverslanir sem eru opnar allan sólarhringinn en ekkert apótekanna er, ef ég man rétt, opið eftir klukkan átta. Ég held að t.d. fjölmargir foreldrar tengi við að þurfa að nálgast einhver lyf fyrir börnin sín kannski seint að kvöldi til. En ég er ekki viss um að ég sé alveg sammála hv. þingmanni um að aðgengisvinkillinn skipti ekki máli hérna á höfuðborgarsvæðinu. Ef við horfum á hugmyndir um 15 mínútna hverfi; fólk kannski á ekki bíl og það röltir í matvöruverslunina en það er lengra í apótek — og þá kannski horfi ég á hv. þm. Pawel Bartoszek. Ég held að þetta snúist um að bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi muni aukið aðgengi koma fólki til góða.