lyfjalög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir ágætisframsögu á þessu máli. Ég er líka flutningsmaður að þessu máli og kem hér til að styðja það. Þetta mál snýst náttúrlega öðrum þræði um atvinnufrelsi líka og að fækka þeim hindrunum sem eru í vegi fyrir því og að treysta fólki til að taka eigin ákvarðanir. Þetta er eitthvað sem Viðreisn hefur barist fyrir í langan tíma og það er bara kominn tími til að klára þetta mál. Hér erum við að tala um lausasölulyf, ekki spurning um hvort fólk megi kaupa lyfið án lyfseðils heldur hvar, af því að það var umræða hér um hvernig þetta væri að nýtast fólki, þetta er bæði það að þú ert á leiðinni heim og það er einfaldlega þægilegra að koma við í einni búð frekar en mörgum þegar það þarf að kaupa þessi lyf líka. Þetta er ekki bara landsbyggðin. Ég bý í Mosfellsbæ og ef mig vantar lyf þá er kannski opið í einhverju apóteki, það er takmarkaður opnunartími þar og það er kannski langt í burtu og þægilegra að geta farið út í næstu matvörubúð sem er kannski opin allan sólarhringinn og náð í lyfin.
Þetta er líka spurning um atvinnufrelsi sem er varið í 75. gr. stjórnarskrárinnar. Það á ekki að setja meiri hömlur á viðskipti frekar en nauðsynlegt er og það þarf frekar að rökstyðja af hverju það á að vera hindrun frekar en að rökstyðja frelsi til að kaupa. Einkaréttur er í sjálfu sér samkeppnishindrandi og eftir því sem það eru fleiri sölustaðir ætti það að birtast í lægra verði. Það var nefnt hér áðan að í dag er bannað að selja lyf í lausasölu sem er í verslun sem er í minna en 19 km fjarlægð frá apóteki. Það er undarlegt að þetta sé sett fram á þennan hátt, þetta er svona handahófskennd fjarlægð og handahófskenndar reglur. En þetta ætti að styrkja þjónustu í dreifðari byggðum og getur jafn vel í einhverjum tilfellum bætt rekstrargrundvöll þeirra verslana sem eru þar. Svo ber náttúrlega að nefna að þetta er sams konar frelsi og Norðmenn, Danir og Svíar hafa leyft. En frumvarpið tekur á því að þetta er frelsi með ábyrgð. Það er gert ráð fyrir því að það verði eftirlit með þessu og það verði gert á ábyrgan hátt, þannig að ég hvet þingmenn til að styðja þetta mál.