158. löggjafarþing — 22. fundur,  22. okt. 2026.

gildi umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu.

[13:58]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurninguna. Ég veit ekki af hverju hann er alltaf að tala um að ég hafi mælt fyrir þessu sex sinnum. Það skiptir kannski ekki öllu máli. Mig minnir að það hafi nú verið þrisvar en það er nú önnur saga. Hins vegar stóð alltaf vilji minn og okkar til þess að fá úr því skorið, því það kom upp á tímabili spurningin um það hvort umsóknin væri raunverulega gild eða ekki, hvort hún lægi bara ofan í skúffu í Brussel og biði eftir því að við myndum endurvekja hana eða hvort í rauninni við hefðum dregið hana alfarið til baka. Þess vegna komum við með þessar tillögur hér inn. Þess vegna lagði ég ítrekað fram þingsályktunartillögu þess efnis sem þingmenn hv. þm. Jens Garðars Helgasonar voru alls ekki að taka undir. Við vorum eiginlega eyland hvað þetta varðaði á Alþingi Íslendinga á þessum tíma og það virtist enginn hafa hinn minnsta áhuga á því í eina sekúndu að fá úr því skorið hvort við ættum formlega að draga þessa umsókn til baka (Forseti hringir.) vegna þess að hér héldu menn því blákalt fram að hún hefði verið dregin til baka. Við sögðum náttúrlega: Nei, það er ekki hafið yfir allan vafa.

Hv. þingmaður, svoleiðis er staðan og ég er ekki að fara að kýtast um það hér og nú hvort eða hvernig eða hvort eða ef. Staðan er svona. Ég virði í rauninni það samstarf sem ég er í og fylgi því algerlega með bros á vör.