notkun ólöglegra peptíða meðal barna og ungmenna.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir góða umræðu og athugasemdir. Það er alveg rétt að forvarnir eru auðvitað það mikilverðasta. Þeim er aldrei nógu vel sinnt en það er mjög góður vettvangur inni í skólunum. Það er þannig að við rekum verkefni sem heitir Heilsueflandi skólar. Það eru leikskólar, grunnskólar og framhaldsskólar og það er embætti landlæknis sem fer fyrir því verkefni. Þar er fjallað um allflestar lýðheilsuógnir sem steðja að börnum og hvað það er sem virkar og ekki virkar. Þannig að það væri vettvangur til að vekja athygli á ólöglegum lyfjum. Og það er þannig að þeir sem eru óprúttnir aðilar og vilja selja slík lyf eru alltaf skrefi á undan og þetta er eitthvað sem við verðum að bregðast við.
Við brugðumst við, ég og Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, í sumar þegar þessi umræða fór á kreik og skrifuðum þá grein sem heitir „Dauðans alvara — fölsuð lyf og ólögleg lyfsala“. Áður hafði Lyfjastofnun staðið fyrir málþingi um fölsuð lyf en við verðum, held ég, öll að hjálpast að við að vekja athygli, sérstaklega barna og ungmenna, á þessari hættu. Sérstaklega vil ég brýna fyrir foreldrum að fylgjast vel með sínum börnum og vanda um við þau. Það er auðvitað það sem miklu máli skiptir og, eins og ég segi, að vinna slík mál inni í skólunum. Vonandi líka — ef við fáum þessa spurningu inn í Íslensku æskulýðsrannsóknina og fáum niðurstöður er auðvitað líka auðveldara að vinna með það.