158. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2026.

brotthvarf á framhaldsskólastigi.

241. mál
[15:09]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Dagbjört Hákonardóttir) (Sf):

Frú forseti. Brotthvarf úr framhaldsskólum er gamalkunnur vandi á Íslandi sem og víða í Evrópu. Það er líka vandi sem sýnt hefur verið fram á að hægt er að leysa eða a.m.k. minnka. Samkvæmt eldri svörum ráðherra á Alþingi höfðu um 30% nýnema horfið frá námi fjórum árum eftir innritun árið 2003 og í nýjustu tölum Hagstofunnar sem birtust 2025 er hlutfallið komið niður í 21%. Það er árangur en þýðir engu að síður að um fimmti hver nemandi hverfur frá námi án þess að ljúka prófi. Í alþjóðlegum samanburði er staðan enn alvarlegri. Árið 2025 mældist snemmbært brotthvarf 16,7% hér á landi en 9,1% að meðaltali í Evrópusambandinu. Við vitum líka að brotthvarf tengist félagslegri stöðu, uppruna og kyni. Það er því líka spurning um jöfn tækifæri. Við höfum á undanförnum árum lagt meiri áherslu á mælingar, snemmtæka greiningu og stuðning við nemendur og sú vinna hefur farið saman við minnkandi brotthvarf en mig langar sérstaklega að nefna Finnland. Þar var skólaskylda lengd til 18 ára árið 2021 samhliða auknum stuðningi. Ný rannsókn bendir til þess að brotthvarf fyrir 18 ára aldur hafi minnkað þar um 20% og að áhrifin séu hlutfallslega meiri meðal drengja, ungmenna af erlendum uppruna og þeirra sem standa félagslega lakar.

Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvaða aðgerðir eru nú í gangi hér á landi og hvaða nýju aðgerðir eru fyrirhugaðar, ef við á, og hvernig hyggst ráðherra nýta þá þekkingu sem þegar liggur fyrir um orsakir brotthvarfs? Og að lokum: Er ráðherra tilbúinn að skoða af alvöru hvort finnska leiðin eða einhverjir þættir hennar geti nýst okkur til að tryggja íslenskum ungmennum farsæl námslok og fjölga í þeim hópi?