brotthvarf á framhaldsskólastigi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur innilega fyrir þessa góðu fyrirspurn og þetta samtal. Ég tek undir með hv. þingmanni, það er sannarlega ýmislegt sem við þurfum að taka alvarlega. Það er sérstaklega þessi stóra og mikla áskorun sem felst í því að koma í veg fyrir að börnin okkar séu að falla svona frá námi. Við styttum nú framhaldsskólann á sínum tíma niður í þrjú ár. Ég er ekki viss um að það hafi verið rétt ákvörðun í fyrsta lagi. Í öðru lagi hef ég núna mjög miklar áhyggjur af þeim sem þegar hafa fallið úr námi og eru stór hluti ungmenna sem hvorki eru virk á vinnumarkaði né í námi. Við höfum kallað þetta svokallaðan NEET-hóp og ég hef miklar áhyggjur af þessu unga fólki og hef verið að skoða hvort ég hafi einhverjar lagalegar heimildir til að koma með ákveðin sérúrræði fyrir þessa einstaklinga því að ég hef líka séð fyrir mér að í hverjum manni býr mikill auður. Hvernig förum við að því að nálgast einstaklinginn og nýta í rauninni það sem hann hefur fram að færa? Þar hef ég séð fyrir mér jafnvel einstakling sem á erfitt með lestur á bók, eins og við höfum séð hvernig í rauninni börnunum okkar hefur gengið og hversu illa þau eru stödd núna með lesskilning eftir tíu ára grunnskólanám. Staðan er í rauninni alvarleg, hv. þingmaður, og við horfum á hana sem slíka. Við erum ekki að stinga höfðinu í sandinn með það og við erum að takast á við verkefnið af öllu hjarta. Þess vegna segi ég þetta: Ég sé fyrir mér unga einstaklinginn sem á erfitt með bóknámið en hann er kannski snillingur á einhverjum öðrum sviðum. Hann gæti orðið hinn besti byggingarverkfræðingur eða snillingur í snyrtifræði eða hverju öðru sem er og við erum í rauninni ekki að aðstoða hann, hann situr í einhverjum NEET-hóp sem ekki er verið að taka nógu vel utan um. En hann, hv. þingmaður, ætla ég svo sannarlega að taka vel utan um ásamt því að berjast gegn því að börnin okkar falli frá námi.