158. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2026.

munnlegar fyrirspurnir á dagskrá.

[15:22]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp undir þessum lið, fundarstjórn forseta, til að hrósa forseta fyrir dagskrá þingsins í dag og að hafa skapað þetta tækifæri fyrir hv. þingmenn til að bera upp munnlegar fyrirspurnir til hæstv. ráðherra. Hér er að koma fram einstaklega jákvæð umræða frá bæði hv. þingmönnum og líka jákvæð skilaboð frá hæstv. ráðherra, t.d. í því máli sem snýr að brottfalli nemenda í framhaldsskóla. En það skiptir gríðarlega miklu máli að við tökum þétt utan um þennan hóp framhaldsskólanema og því miður eru tölur í Íslensku æskulýðsrannsókninni farnar að sýna fram á að það er einmitt við þennan 16 ára aldur þar sem andlegri líðan hrakar hratt. Depurð og kvíði eykst hjá stúlkum og strákarnir fara líka að flosna upp úr skóla. Við erum búin að sjá alls konar breytingar á neysluhegðun ungmenna þegar kemur að forvarnastarfinu og það er vel en við þurfum líka að stíga inn í andlegu hliðina og styðja við unga fólkið okkar. Það þarf bæði að vera með fyrsta stigs þjónustu eins og t.d. ungmennahús, sem voru rædd hér í gær, innan framhaldsskólanna sem geta verið með fyrirbyggjandi aðgerðir fyrir þetta unga fólk og síðan viðeigandi úrræði eins og lágþröskulda sálfræðiþjónustu og sálfræðinga inni í framhaldsskólunum þegar vandinn verður meiri. Þannig að ég vildi bara koma upp og fagna þessari umræðu og að forseti hafi gefið okkur tækifæri til að ræða þessi mikilvægu mál hér í þinginu.