158. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2026.

afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati.

239. mál
[15:32]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Ég er kominn hingað upp til að fagna þessari umræðu og þakka kærlega fyrir hana, ekki síst vegna þess að þetta hefur verið mikið áhugamál mitt, eiginlega frá árinu 2003 þó að í rauninni hin formlega vinna hafi, eins og hér hefur komið fram, kannski ekki farið af stað fyrr en í kringum 2010, 2011. Þetta er búið að vera baráttumál þeirra sveitarfélaga sem eru í nærumhverfi virkjana í ansi langan tíma. Ég kem að þessu verkefni á sínum tíma sem bæjarstjóri á Austurlandi, við framkvæmdir á Kárahnjúkum. En ég bara hvet ráðherra til dáða að vinna að þessu verkefni. Ég veit að þetta er ekkert einfalt mál, þetta er flókið og það þarf að draga marga aðila að verkefninu og það skiptir líka máli að sjálfsögðu að vanda til verka. En það skiptir gríðarlega miklu máli að þetta mál komist í gegnum þingið og fái þann stuðning sem það á svo sannarlega skilið og það fær minn stuðning að sjálfsögðu.