afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svörin og ég tek undir að þetta er flókið mál og ég hef fullan skilning á því að aðlögunartíminn taki tíma. En það sem sveitarfélögin kalla eftir er fyrst og fremst fyrirsjáanleiki. Mig langar líka, af því að hæstv. ráðherra fór inn á áhrifasvæði nálægt vindmyllum og öðru slíku, að taka dæmi úr minni heimabyggð sem er Hveragerði, sem er þéttbýliskjarni nálægt áhrifasvæði, þar sem við erum með Hengilinn og við erum með jarðhitann. Það þarf að horfa vel á áhrifasvæði sem er nálægt þéttbýli og hefur mest áhrif á íbúa þess sem þar eru en samkvæmt líkaninu sem núna er notað hefur ekki verið tekið nægilega mikið tillit til þess. Ég hvet ráðherra til að skoða það af því að ég hugsa að það séu ekki mörg þéttbýli sem eru nálægt svona áhrifasvæðum.
Ég vil bara ítreka enn á ný hversu brýnt og mikilvægt það er að þetta mál nái fram að ganga og sveitarfélögin hafa beðið, eins og fram hefur komið, í á annan áratug. Þetta er flókið mál sem krefst aðkomu margra. Sveitarfélögin eru núna að setja saman fjárhagsáætlanir en það er ágætt að það hefur komið fram hér að mögulega taki afnám undanþágu ekki gildi fyrr en í janúar 2028 þannig að það er auðvitað fyrirsjáanleikinn sem um ræðir.
Ávinningurinn er mikill. Hann felst í réttlátri skiptingu tekna þar sem sveitarfélög sem hýsa lón, jarðhitasvæði og vindorkuver fá loksins sinn hlut. Hann felst í sterkari tekjustofnum sem nýtast í skóla, leikskóla, götur og velferðarkerfi hjá sveitarfélögunum og ekki síst felst hann í aukinni sátt um orkuöflun því að þegar nærsamfélagið nýtur góðs af er hægt að höggva á þá hnúta sem hafa lengi tafið fyrir nauðsynlegri uppbyggingu orkuinnviða í landinu. Ég heyri að hæstv. ráðherra deilir þessari sýn og ráðuneytið hefur auðvitað unnið vandaða og yfirgripsmikla vinnu í samráði við sveitarfélögin og aðra hagsmunaaðila og nú þurfum við að ljúka verkinu saman. (Forseti hringir.) Ég hvet hæstv. ráðherra til dáða og heiti því að leggja mitt af mörkum til að málið nái fram að ganga svo (Forseti hringir.) nærsamfélögin um allt land fái loksins notið þess réttlætis sem þau hafa lengi beðið eftir.