158. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2026.

afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati.

239. mál
[15:36]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Söndru Sigurðardóttur fyrir seinni ræðu sína. Þetta er réttlætismál. Og af hverju er það réttlætismál? Jú, það er vegna þess að virkjanir landsins, vatnsaflsvirkjanir, jarðvarmavirkjanir og vindorkuver, við erum með eitt vindorkuver núna, eru með verðmætustu eignum Íslendinga og það er gríðarleg verðmætasköpun bæði í álverum og fleiri fyrirtækjum. Við erum svo sannarlega eins konar Sádi-Arabía þegar kemur að raforkumálum. Það er réttlætismál að þegar sveitarfélag er með svona verðmæt mannvirki á sínu yfirráðasvæði eða í sínu umdæmi fái það sanngjarnan fasteignaskatt.

Undanþágurnar á sínum tíma frá fasteignaskatti komu áður en við fórum að markaðsvæða raforkumarkaðinn. Nú erum við búin að markaðsvæða hann að miklu leyti með tilskipun frá Evrópusambandinu, m.a. út af þátttöku í EES-samningnum, þannig að ég tel að það sé rétt tímasetning núna að afnema þessar undanþágur frá fasteignaskatti sem orkumannvirki hafa notið. Þetta styrkir tekjugrunn orkusveitarfélaganna og líka annarra sveitarfélaga þegar gert er ráð fyrir að hluti teknanna fari í gegnum jöfnunarsjóð. Þetta er verðmætasköpunarmál þar sem þetta leiðir til hvatningar fyrir sveitarfélögin til að stuðla að orkuvinnslu í sínu umdæmi vegna þess að þau fá ávinning af því.

Ég vil þakka hvatninguna sem ég fékk hér í ræðu áðan. Ég veit að fyrirsjáanleikinn er gríðarlega mikilvægur. Við höfum verið að vinna þetta lengi og erfiðasti hlutinn núna er tæknilega breytingin sem lýtur að tölvukerfum sem halda utan um fasteignir á Íslandi; þau hafa ekki náð utan um orkumannvirki. Þá erum við að tala um þessa tæknilegu hluti eins og fasteignaskrá, þinglýsingar og álagningarkerfi. Svo er líka eitt í þessu. Orkumannvirki hafa ekki gengið kaupum og sölum á almennum markaði eins og hefðbundið húsnæði (Forseti hringir.) þannig að þróa þarf nýja aðferðafræði þar. Við erum líka með þetta merkilega hugtak rýmiseign sem er algjörlega nýtt hugtak í fasteignarétti sem mun líka nýtast varðandi fleiri mannvirki í framtíðinni. — Ég þakka fyrir góða umræðu.