aðgerðir vegna rakaskemmda.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni kærlega fyrir þessar umræður. Þær eru auðvitað mjög mikilvægar. Það er spurt hvernig brugðist hefur verið við og gripið til aðgerða varðandi þær sex aðgerðir þingsályktunar nr. 14/151 á sínum tíma.
Mikilvægur þáttur í þeirri vinnu sem við höfum verið að vinna er sú kerfisbreyting sem nú er unnið að á sviði mannvirkjagerðar og hefur nú verið birt frumvarp þess efnis í samráðsgátt. Þar er m.a. lögð áhersla á áhættumiðað eftirlit. Þetta er sem sagt frumvarp um nýtt byggingareftirlit. Þar er m.a. lögð áhersla á skýrari ábyrgðarkeðju, aukinn rekjanleika upplýsinga í mannvirkjaskrá og fyrirhugað notkunareftirlit. Samhliða hefur verið unnið að fræðslu og rannsóknum á rakaöryggi og sömuleiðis líka útgáfu á tæknilegum leiðbeiningum og aðgerðum sem miða að aukinni þekkingu á byggingarvörum og bættu aðgengi og prófunum þeirra.
Sameiginlegt markmið þessara aðgerða er að fyrirbyggja galla eftir því sem kostur er og greina þá fyrr þegar þeir koma upp og tryggja betri upplýsingar og rekjanleika þegar grípa þarf til úrbóta. Um leið byggist upp aukin þekking á byggingargöllum og orsökum þeirra sem getur nýst áframhaldandi þróun regluverks, fræðslu og eftirlits og neytendaverndar.
Frumvarpi mínu sem nú liggur í samráðsgátt er ætlað að styrkja réttindavernd eigenda og kaupenda húsnæðis með tvennum hætti. Annars vegar verður dregið úr líkum á byggingargöllum með áhættumiðuðu eftirliti þar sem eftirliti verður sérstaklega beint að þeim þáttum mannvirkjagerðar þar sem áhætta afleiðinga mistaka er mest. Hins vegar verður ábyrgðarkeðjan skýrari þegar gallar koma upp og lögð áhersla á að mikilvæg gögn um hönnun, framkvæmd og eftirlit séu varðveitt og aðgengileg í mannvirkjaskrá, svona hálfgerð smurbók eins og fylgir bílum. Það styrkir stöðu neytandans þar sem betri rekjanleiki upplýsinga auðveldar að greina hvað fór úrskeiðis og hver ber ábyrgð á viðkomandi verkþætti sem leiðir til skýrara ferlis fyrir neytanda til að leita réttar síns.
Því til viðbótar mun notkunareftirlitið bæta við upplýsingum um mannvirkið eftir að það hefur verið tekið í notkun. Þannig skapast betri forsendur til að mistök og gallar uppgötvist fyrr á líftíma húsnæðis. Gögn sem safnast með notkunareftirliti munu jafnframt skapa betri þekkingu á tíðni, eðli og þróun byggingargalla. Slíkur gagnagrunnur getur síðan nýst við mat á því hvort þörf sé á frekari úrræðum til að styrkja réttindavernd fasteignaeiganda, þar á meðal hvort tilefni sé til að skoða betur byggingargallatryggingu. Þannig felst aukin réttindavernd ekki eingöngu í úrræðum eftir að tjón hefur orðið heldur einnig í öflugri forvörnum, skýrari ábyrgð og betri rekjanleika gagna og auknum möguleikum á að finna og lagfæra galla áður en þeir valda frekara tjóni.
Hvað varðar markmiðið sem felst í því að efla sjálfstætt eftirlit með prófunum á byggingarefnum hefur HMS brugðist við annars vegar með því að efla þekkingu markaðarins á kröfum til byggingarvara og hins vegar með því að stuðla að bættu aðgengi að faggiltum og óháðum prófunum byggingarvara. Einnig hafa verið haldin námskeið fyrir framleiðendur, innflytjendur og dreifendur, hönnuði og ráðgjafa, auk þess sem leiðbeiningar og annað fræðsluefni hefur verið útbúið og kynnt. Jafnframt hefur HMS unnið að því að bæta aðgengi að faggiltum og áreiðanlegum prófunum byggingarvara, bæði með tengslum við prófunarstofu erlendis og með því að efla forsendur á slíkum prófunum hér á landi. Sem liður í þeirri vinnu hefur verið lögð áhersla á prófanir glugga í samstarfi við Tæknisetur enda geta ágallar á gluggum og frágangi þeirra tengst rakavandamálum. Einnig hefur verið unnið markvisst að því að efla þekkingu fagaðila á rakaöryggi og rakaskemmdum og forvörnum með rannsóknum, fræðslu, námskeiðahaldi og útgáfu tæknilegra leiðbeininga. Þá má geta þess að bæði Burður og Askur hafa fengið mikið af styrkumsóknum vegna rannsóknarvinnu á þessum vágesti sem rakaskemmdir og mygla er.
Það sem skiptir líka mjög miklu máli, bæði varðandi eftirlit á nýbyggingum og breyttu og öflugra byggingareftirliti, er að allt viðhald, sérstaklega opinberra bygginga hjá sveitarfélögum, stjórnvöldum og ríkinu, sé ekki með þeim hætti sem hefur verið undanfarin ár og áratugi þar sem viðhald fasteigna er yfirleitt það fyrsta sem er skorið niður þegar kemur að aðhaldi. Í fjárlaganefnd á síðasta ári lá fyrir frumvarp um fasteignir sjúkrahúsa sem m.a. átti að tryggja að kostnaður við viðhald væri t.d. ekki í höndum fjárveitingavaldsins hverju sinni (Forseti hringir.) heldur væri því komið í fastari skorður með viðhaldssjóðum. Ég held að það sé mjög mikilvægt og ég sakna þess að það hafi ekki náð í gegn á síðasta þingi.
En annars þakka ég hv. þingmanni kærlega fyrir þessa umræðu. Hún er mikilvæg (Forseti hringir.) og löngu tímabær.