158. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2026.

aðgerðir vegna rakaskemmda.

246. mál
[15:49]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Eiríkur Björn Björgvinsson) (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka ráðherra kærlega fyrir hans svör og viðbrögð við spurningum mínum og eftirfylgni. Mig langar að taka undir með ráðherranum varðandi viðhald á opinberum mannvirkjum. Það er gríðarlega mikilvægt að það sé meira skipulag á því enda sjáum við það bæði hjá ríki og sveitarfélögum í hvaða óefni er komið og þetta er enn ein innviðaskuldin sem við erum að glíma við í dag. En mig langar líka að taka undir að það er fjöldi fólks sem hefur farið illa út úr fasteignakaupum, m.a. vegna rakaskemmda á húsnæði sem síðan hefur valdið andlegum og líkamlegum veikindum. Því er mikilvægt fyrir okkur, ekki síst löggjafann og framkvæmdarvaldið, að vernda fólk fyrir slíkri áhættu. Ég hvet ráðherrann til að fylgja þessu eftir og ég mun að sjálfsögðu halda honum við efnið.