158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

varamenn taka þingsæti.

[13:30]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hafa bréf frá Sigmundi Erni Rúnarssyni, Ingvari Þóroddssyni, Örnu Láru Jónsdóttur og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um að þau verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Bryndís Haraldsdóttir verði fjarverandi næstu daga vegna opinberra erinda.

Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Anna María Jónsdóttir, 1. varamaður á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, Heiða Ingimarsdóttir, 2. varamaður á lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi, Jóhanna Ösp Einarsdóttir, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll, 4. varamaður á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi, Ragnar Jónsson, en varamenn ofar á lista hafa boðað forföll, og 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjördæmi, Ragnhildur Jónsdóttir.

Anna María Jónsdóttir, Heiða Ingimarsdóttir og Ragnhildur Jónsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.