áhrif skattahækkana á ferðamannastaði á Suðurlandi.
Virðulegi forseti. Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs. Þetta eru skilaboð ársþings Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga frá síðustu viku til ríkisstjórnarinnar. Sveitarfélögin hafa varað við því að sívaxandi álögur grafi undan atvinnulífi á Suðurlandi og þau krefjast þess að áformunum verði frestað þar til samanlögð áhrif þeirra hafi verið metin. Ég tek undir þá sjálfsögðu kröfu. Hæstv. forsætisráðherra ber ábyrgð á heildarstefnu ríkisstjórnarinnar og verður að tryggja að ákvarðanir einstakra ráðherra séu metnar í samhengi. Sérstök gjaldtaka á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi bætist samkvæmt áformunum við hækkun virðisaukaskatts á baðlón, kílómetragjald og aðrar álögur. Fyrirtæki sem hyggst fjárfesta eða ráða fleira fólk þarf að taka þetta allt saman í reikninginn og ríkisstjórnin verður að gera það líka. Ég minni á að ríkissjóður fær engar tekjur af fjárfestingum sem aldrei verður ráðist í eða störfum sem aldrei verða til. Ég vil að við gerum fólki auðveldara að fjárfesta og byggja upp atvinnu í heimabyggð. Tekjur af ferðaþjónustu þurfa að nýtast betur til uppbyggingar innviða þar sem álagið verður til og sveitarfélögin eiga að koma að þeirri vinnu og geta haft áhrif á niðurstöðuna.
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Hefur ríkisstjórnin látið meta samanlögð áhrif þessara skattahækkana og gjaldtöku á störf og fjárfestingar á Suðurlandi og mun ráðherra leggja það mat fram? Ef matið liggur ekki fyrir, mun þá hæstv. forsætisráðherra verða við kröfu sveitarfélaganna og beita sér fyrir því að afgreiðslu áformanna verði frestað þar til óháð heildarmat liggur fyrir og samráð hefur farið fram?