158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

áhrif skattahækkana á ferðamannastaði á Suðurlandi.

[13:41]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hér er talað um að samráð hafi átt sér stað og hér eru nefnd samtök fyrirtækja í ferðaþjónustu. Þessi sömu samtök eru núna í fundaherferð hringinn í kringum landið og tala um nákvæmlega þetta, að það sé ekkert samráð. Það hefur ekkert samráð átt sér stað, algjör skortur á samtali. Ég ætla síðan að minna hæstv. forsætisráðherra á ummæli sem forsætisráðherra lét falla á blaðamannafundi 21. desember 2024, með leyfi forseta, orðrétt:

„Varðandi ferðaþjónustuna, og ég byrja bara þar, þá leggjum við sérstaka áherslu einmitt á það eins og Þorgerður Katrín sagði að það stendur ekki til að fara í hækkun á virðisaukaskatti og það stendur ekki til að fara í svona breytingar á þeim tekju- eða gjalda- og skattstofnum sem þegar eru til staðar í ferðaþjónustunni.“

Hvað er að marka þessi orð sem voru sögð þegar svo ríkisstjórnin gerir eitthvað allt annað? Ég spyr því aftur: Mun hæstv. forsætisráðherra stöðva þessa sérstöku skattheimtu á Suðurlandi eða er það hennar stefna að gera landshlutann að þeim hraðbanka ríkissjóðs (Forseti hringir.) sem sveitarfélögin hafa nú sagt skýrt að þau ætla ekki að vera?