ummæli framkvæmdastjóra Flokks fólksins um kjarnorkuvopn.
Virðulegur forseti. Á föstudaginn bárust okkur fréttir af afar alvarlegum ummælum framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, eins ríkisstjórnarflokksins, sem beinir þeim tilmælum til forseta Frakklands að senda hermenn til Úkraínu og hafa kjarnorkuvopn tilbúin til notkunar. Það er ekki hver sem er sem skrifar þetta á opinberan vettvang. Þetta er framkvæmdastjóri stjórnmálaflokks í ríkisstjórn Íslands. Það þarf vart að minna á að beiting kjarnavopna getur haft skelfilegar afleiðingar fyrir mannkynið. Íslensk utanríkisstefna hefur um áratugaskeið byggst á alþjóðlegri samvinnu, friðsamlegri lausn deilumála, afvopnun og aðgerðum gegn útbreiðslu kjarnavopna. Þótt viðkomandi hafi nú beðist afsökunar og fannst það reyndar mikilvægt í þeirri yfirlýsingu að taka það fram, virðulegur forseti, að þetta væri nú ekki stefna Flokks fólksins, ef einhver var að velta því fyrir sér, heldur skrif á hans eigin vegum, þá vekja þessi ummæli augljóslega upp spurningar, ekki síst í ljósi þess, eins og ég sagði áður, að þau koma frá einstaklingi sem gegnir ábyrgðarstöðu fyrir einn ríkisstjórnarflokkanna.
Mig langar því að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort hún telji að slík ummæli háttsetts aðila innan ríkisstjórnar Íslands geti haft orðsporsáhættu fyrir land og þjóð og hvort hæstv. ráðherra hafi rætt þessi ummæli við samstarfsflokka sína í ríkisstjórn til að tryggja að enginn vafi leiki á afstöðu íslenskra stjórnvalda til beitingar slíkra vopna.