ummæli framkvæmdastjóra Flokks fólksins um kjarnorkuvopn.
Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika að það er ekki bara einhver hliðarsetning en framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins hefur beðist afsökunar á þessu og ég held að það liggi alveg skýrt fyrir. Það sem ég skynja hins vegar er að það er í samræmi — og þessar yfirlýsingar eru ekki í samræmi við neitt sem snertir íslenska utanríkisstefnu. Það sem við erum hins vegar samhuga og einhuga hér um er að styðja við Úkraínu gagnvart grimmdarárásarstríði Rússa. Það er undirtónninn. Það er skilningurinn sem ég sé út úr þessu og það er það sem ég tek með mér. Heimir Már Pétursson er búinn að biðjast afsökunar, það liggur fyrir. Afstaða Íslands liggur líka fyrir með því að vera þátttakandi í NATO, með því að vera hluti af „Coalition of the Willing“, með því að vera hluti af þeirri samstöðu sem við í Evrópu þurfum núna að sýna. Þegar vetur gengur í garð í Úkraínu þurfum við að sýna samstöðu með Úkraínu og þétta raðirnar. Það er það sem ég tek út úr þessu. Mér finnst gott að hann var fljótur að biðjast afsökunar á þessu enda er stefna Íslands alveg skýr þegar kemur að kjarnorkuvopnum. Við styðjum afvopnun stórveldanna varðandi kjarnorkuvopn. Það er hins vegar umhugsunarefni að núna er sá alþjóðasamningur ekki í gildi. Það er stóra áhyggjuefnið; að við erum ekki lengur með í gildi, til að mynda á milli stórveldanna, ákveðinn farveg til þess að draga úr kjarnorkuvopnum. Friðelskandi þjóð eins og við Íslendingar á að tala fyrir því að ná þeim skrefum til að gera heiminn okkar öruggari.