föst starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða spurningu og við hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson deilum þessum áhuga. Ég lét hann m.a. í ljós á þessum fundi á Akureyri, að þetta væri mér, líkt og fleirum sem eru í stjórnarliðinu, hjartans mál. Ég held að það sé mjög mikilvægt af margs konar ástæðum að dreifa viðbragðsgetunni betur hringinn í kringum landið og ég hygg að ég þurfi ekki að reifa það neitt sérstaklega hér vegna þess að hv. þingmaður þekkir það vel til. Það er líka rétt að partur af til að mynda þessari viðbótargetu eða viðbótarkröfu sem er að koma til okkar vegna NATO, upp á 1,5%, nær til þátta sem eiga líka heima hjá Landhelgisgæslunni sem er núna með fjármögnun úr tveimur ráðuneytum, utanríkisráðuneytinu og dómsmálaráðuneytinu. Það eru sum verkefni, til að mynda viðbragðshlutinn sem snýr að þyrlunum, sem geta fallið undir þessi mál og þetta er eitt af því sem er í skoðun í ráðuneytinu. Ég get ekki lagt fram tímasetta áætlun hér núna því að hún er ekki komin en þetta er eitt af þeim málum sem er sérstaklega verið að skoða vegna þess að það er vitað að þetta er svona týpískt verkefni sem myndi henta landi eins og Íslandi alveg ótrúlega vel í þessu samhengi. Við erum strjálbýlt land, við erum land sem þarf að samnýta svona fjárfestingar fyrir heilbrigðisþjónustu, fyrir almannavarnir og fyrir aðra þjónustu, til að mynda varnartengda þjónustu. Þannig að þetta kemur vel til greina og er eitt af því sem er verið að skoða og ég hygg að það verði sagt frá því bara um leið og það liggur fyrir hvaða tímalínu við getum verið að vinna með.