föst starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Virðulegi forseti. Það tók eitt ár að koma með svar til fjárlaganefndar opinberlega um hvað væri mikið að renna inn í 1,5%, raunar til að efla áfallaþol og viðnámsþrótt íslensks samfélags, 0,92%. Þetta er útskýrt en ekki djúpt. Í þessari fjármálaáætlun sem við erum að ræða í dag er þetta um 1% á tímabilinu 2027–2031 sem þetta fer upp í, en það er ljóst að þessi ríkisstjórn ætlar sér að láta næstu ríkisstjórn og jafnvel þá þarnæstu efna þetta loforð við Atlantshafsbandalagið. Það að fara úr 1% í 1,5% á tímabilinu 2032–2035, þar liggja þá 25–30 milljarðar. Þarna er verið að varpa þessu á næstu ríkisstjórn eða næstu ríkisstjórnir. Það var ljóst í 1. umræðu fjárlaga að hæstv. dómsmálaráðherra sagði að það væri ekki gert ráð fyrir í neinum plönum ríkisstjórnar, í fjármálaáætlun eða fjárlögum, að þetta loforð yrði efnt.