föst starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Frú forseti. Ég þakka fyrir tækifærið til að skýra þetta nánar vegna þess að ég hygg að það sé reyndar mjög mikilvægt að allur þingheimur fjalli með jafn líkum hætti um okkar skuldbindingar gagnvart NATO því að þetta er ekki bara flokkstengt áherslumál, þetta eru skuldbindingar gagnvart Atlantshafsbandalaginu. Það skiptir máli hvernig við tölum hér inni og það skiptir líka máli hvernig við tölum um þetta út á við. Þetta er ekkert val, þetta er bara partur af því að vera undir þessum verndarvæng. Við erum að horfa upp á það að lönd sem eru í allt annarri velferðar- og fjárhagsstöðu en við eru að greiða um 5% á ári hverju, en þessi 1,5%, svo það sé alveg skýrt, miðast við að við séum komin upp í það 2035. Það er vilyrðið, það er krafan, ef svo má segja. Það er það sem er verið að fylgjast með hjá okkur. Það er það sem er verið að vinna í. Í dag er þetta í kringum 0,9% og við erum að skríða þarna upp og erum að bæta verulega í en erum einmitt að leita leiða, eins og hv. þingmaður benti réttilega á, sniðugra leiða (Forseti hringir.) sem henta líka okkar nærumhverfi, almannavörnum, heilbrigðisþjónustu, löggæslu og varnartengdri þjónustu til að gera þetta vel en líka að þetta þjóni okkar tilgangi hér heima.