tekjur af náttúru- og innviðagjaldi á Suðurlandi.
Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra hefur sagt að við ætlum að ná hallalausum fjárlögum hvað sem það kostar, jafnvel þó að það kosti tekjulægra fólk samkvæmt fjárlögunum, eins og kemur í ljós á utreikningur.is, meira hlutfallslega en þá sem eru með breiðu bökin. Varðandi náttúru- og innviðagjald þá sagði hæstv. forsætisráðherra áðan: Við ætlum ekki að fresta þessu máli. Þegar þetta mál kemur loksins hingað inn — það er 2. nóvember í dag, málið er ekki komið inn, það eru innan við tveir mánuðir til áramóta, þá byrja skattarnir að tikka inn, það er mikill fyrirsjáanleikinn — þá ætlum við ekki að fresta þessu máli. Hæstv. fjármálaráðherra hefur látið hafa ýmislegt eftir sér um þetta mál, var á fundi á Selfossi í gær þar sem m.a. mikill fjöldi ferðaþjónustuaðila og sveitarfélaga uppsveita Árnessýslu mætti á fundinn. Þar sagði hæstv. fjármálaráðherra, og hefur svo sem sagt líka annars staðar — og það kemur reyndar fram í greinargerð hæstv. atvinnuvegaráðherra — að markmiðið með þessu máli sé að dreifa ferðamönnum, þ.e. fækka ferðamönnum í uppsveitum Árnessýslu. Það er markmiðið, að draga úr umsvifum fyrirtækjanna á staðnum, ekki bara stóru staðanna heldur allra fyrirtækjanna. Það stendur reyndar líka í markmiði þessarar greinargerðar að þetta sé svo hófstillt gjald að það hafi engin áhrif.
Nú hefur hæstv. fjármálaráðherra stundum, óumbeðið, tekið okkur í kennslustund í hagfræði. Nú ætla ég að biðja hæstv. fjármálaráðherra að útskýra fyrir okkur hérna í þingheimi hvernig 5 milljarðar, sem er sama upphæð og öll sveitarfélögin á starfssvæði SASS frá Hornafirði, Vestmannaeyjum og öllu Suðurlandi fá í tekjur af ferðaþjónustunni, hvernig 5 milljarðar sem eru teknir út úr einu sveitarfélagi á einum stað hafa annars vegar engin áhrif (Forseti hringir.) og eru hins vegar lykilatriði til þess að dreifa ferðamönnum um landið. Ég bíð spenntur.