tekjur af náttúru- og innviðagjaldi á Suðurlandi.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir spurninguna. Það kemur mér nokkuð á óvart að það sé eftirspurn eftir þessum fyrirlestrum af því að þeim hefur verið frekar illa tekið hér áður en ég er auðvitað boðinn og búinn að aðstoða þar sem ég get.
Það er ljóst að umræða um þetta innviðagjald hefur staðið alllengi og markmiðið með því hefur alltaf verið að dreifa ferðamönnum um landið, búa til fjárhagslega hvata til að fleiri staðir virkist og raunar fór hæstv. forsætisráðherra yfir það í svari sínu hérna áðan. En það er annað sem þetta snýst raunverulega um líka. Það er að dreifa þeim um árið. Hugmyndin með gjaldinu er að það sé mismunandi eftir árstímum einmitt til þess að stuðla að því að við nýtum betur þá innviði sem ferðaþjónustan hefur komið sér upp og raunar aukum tækifæri ferðaþjónustufyrirtækja til að skapa sér tekjur. Þetta er liður í aðgerðum til þess að dreifa ferðamönnum. Annar liður í þeim aðgerðum er það auglýsingaátak sem stjórnvöld hafa ráðist í ásamt ferðaþjónustufyrirtækjum og hófst núna í vor sem snýr einmitt að því að fá ferðamenn til landsins utan háannatíma. Viðbætur á annatíma myndu lítil áhrif hafa önnur en þau að búa til eftirspurn sem ekki er hægt að mæta en eftirspurn utan háannatíma nýtir betur þær fjárfestingar sem eru fyrir þannig að þetta snýst bæði um að dreifa um landið og dreifa í tíma.
Varðandi síðan hvort gjaldið er hátt eða ekki þá er þarna bæði borið saman við auðvitað hvernig sambærileg gjöld eru í nágrannalöndunum en líka varðandi heildarkostnað ferðamanna af því að ferðast til Íslands. Það verður að skoða þessa gjaldtöku í því samhengi. Í samhengi við veltu ferðaþjónustunnar, sem eru þá útgjöld ferðamanna sem ferðast til Íslands, þá er gjaldið ekki hátt. Það hefur raunar rúmast margfaldlega innan þeirra verðbreytinga sem einfaldlega hækkanir á olíuverði á undanförnum mánuðum hafa kallað fram.