158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

tekjur af náttúru- og innviðagjaldi á Suðurlandi.

[14:11]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Þetta er frekar aumur hagfræðifyrirlestur. Ég skildi hvorki upp né niður. Hvort skilduð þið, hv. þingheimur, það þannig að markmiðið væri að dreifa ferðamönnum eða að þetta hefði engin áhrif á ferðaþjónustufyrirtækin í uppsveitum Árnessýslu? Ég skildi það ekki sem svo. Útfærslan skiptir auðvitað öllu máli og samtalið. Það skiptir auðvitað öllu máli. Er búið að gera áhrifamat á ferðaþjónustufyrirtæki, litlu fyrirtækin? Hefur það engin áhrif ef 20 manna hópur á rútu þarf að borga 140.000 kr. fyrir að vera í uppsveitum Árnessýslu eða ekki? Skiptir það engu máli? Hafa 5 milljarðar engin áhrif á eftirspurnina, hæstv. fjármálaráðherra? Hefur það engin áhrif að hækka skatta á tiltekið svæði um 5 milljarða, án þess að það hafi nein áhrif á eftirspurn þess svæðis? Eða er ríkisstjórninni alveg slétt sama, af því að það skiptir bara máli að ná hallalausum fjárlögum og það skiptir engu máli hvort það er tekjulágt fólk í landinu sem á að fara að borga þennan skatt eða ferðaþjónustufyrirtækin í uppsveitum Árnessýslu með störfum sínum? Ég minni á að í Bláskógabyggð koma 40% af skatttekjum þess sveitarfélags frá ferðaþjónustunni.