158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

skrif framkvæmdastjóra Flokks fólksins.

[14:15]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Hér ræðum við ummæli einstaklings sem getur ekki auðveldlega varið sig á þessum vettvangi, hér í ræðustól, þó að hann geti auðvitað gert það annars staðar. Mig langar samt bara að nefna nokkra hluti. Þann 9. september í viðtali tjáði Dmitry Medvedev, fyrrum forseti Rússlands, sig og áréttaði þá skoðun sína að Rússland gæti eytt Vesturlöndum út og breytt þeim í kjarnorkuryk. Rússar sendu „non-paper“ til Atlantshafsbandalagsins í lok síðasta mánaðar þar sem þeir áréttuðu sína stefnu í kjarnorkumálum. Vladimír Pútín áréttaði líka þessa skoðun sína að það að koma fyrir vopnum eða hermönnum í Eystrasaltsríkjunum gæti kallað á viðbrögð hvað varðar kjarnorkunotkun. Síðast á fimmtudag gerðu Rússar tilraunir með vopn sem geta auðveldlega borið kjarnavopn nálægt NATO. Þannig að við skulum auðvitað tala varlega og ekki auka á spennu í heiminum. En látum ekki svo að helstu stríðsmangara heimsins og þá sem eru ógn við heimsfriðinn sé að finna í þessum sal eða í hliðarsölum.