158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

skrif framkvæmdastjóra Flokks fólksins.

[14:17]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég vil nota tækifærið og bera hönd fyrir höfuð mér vegna ummæla hæstv. utanríkisráðherra í svari til hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar út af ummælum starfsmanns ríkisstjórnarflokkanna, sem ég í sjálfu sér hef ekki séð en hef séð fréttir af og eru auðvitað alvarleg og svo sem full ástæða fyrir hv. þingmenn að spyrja utanríkisráðherra þessarar spurningar sem var sett fram sem varðaði orðsporshnekki Íslands af þessu tilefni. Hæstv. utanríkisráðherra svaraði því ekki en gerði hins vegar hitt í seinna andsvari, sem er verra, tók skömmina af þessum ummælum, vöðlaði henni upp og henti henni blákalt í andlitið á stjórnarandstöðunni með vísun til þess að stjórnarandstöðuþingmenn hefðu ekki gert athugasemdir við tíst erlends þjóðhöfðingja eða ráðherra, eins og þingmönnum hér á Alþingi Íslendinga stjórnarmegin eða stjórnvöldum beri einhver skylda til þess.

Þetta fannst mér ómaklegt, virðulegur forseti, af utanríkisráðherra að gera (Forseti hringir.) í svona alvarlegu máli þar sem er verið að ræða mögulegan álitshnekki Íslands af hálfu starfsmanna ríkisstjórnarflokkanna. Stjórnarandstöðuþingmönnum ber engin skylda til að tjá sig um tíst eða ummæli erlendra ráðamanna.