158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

Loftslagsmál.

[14:29]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að hefja þessa mikilvægu umræðu hér í dag. Þetta er umræða um loftslagsáhættu sem er mál sem varðar öryggi okkar allra til framtíðar. Hv. þingmaður lýsti ágætlega veltihringrás Atlantshafsins þannig að ég ætla ekki að endurtaka þá ágætu fræðslu, mér fannst hann koma þessu vel til skila. En rannsóknin sem hv. þingmaður vísaði sérstaklega til birtist í ágúst í fyrra. Þar voru loftslagslíkön keyrð langt fram yfir árið 2100 og niðurstöðurnar benda til þess að ef losun heldur áfram að aukast geti hringrásin veikst mikið eða hrunið jafnvel í 70% tilvika. Og jafnvel þótt dregið verði hratt úr losun gerist það í 25% tilvika samkvæmt þessum útreikningum. Ef verkfræðingar segðu okkur að í 25% útreikninga kæmist flugvél ekki á leiðarenda held ég að ekkert okkar myndi stíga um borð í flugvélina, hvað þá senda börnin okkar eða barnabörn í flugið. Þannig að þetta eru niðurstöður sem við hljótum að taka alvarlega. Jafnvel þótt líkurnar á hruninu væru ekki nema 1% eða 10% eru þetta þannig vísbendingar að okkur ber að taka þær alvarlega. Áður en þessi rannsókn kom út höfðu raunar fleiri en 40 vísindamenn sent Norrænu ráðherranefndinni varnaðarorð um mögulegt hrun hringrásarinnar haustið 2024. Auðvitað er það þannig að stjórnvöld eru sífellt að meta og gæta að áhættu og við erum vön því hér á Íslandi. Reynslan af náttúruvá kennir okkur að undirbúningur fyrir verstu sviðsmyndir er mikilvægur þótt við vitum auðvitað ekkert hvort váin raungerist. En vandinn er sá að ef við ætlum að bíða eftir fullkominni vísindalegri vissu um veikingu eða hrun veltihringrásarinnar, og það sama gildir um aðra loftslagsvendipunkta, er hætt við því að við getum ekki brugðist við fyrr en það er orðið of seint.

Hv. þingmaður spyr um viðbrögð við þessum rannsóknum og hvar sú vinna sé stödd. Því er til að svara að haustið 2025 óskaði ég eftir minnisblaði um málið frá sérfræðingum ráðuneytisins og frá Veðurstofu Íslands. Í kjölfarið lagði ég málið fyrir ríkisstjórn og við ákváðum að vísa því sérstaklega til þjóðaröryggisráðs. Þetta er í fyrsta skipti sem tiltekin loftslagsvá og upplýsingar um hana eru lagðar fyrir ráðið. Í maí skipaði ég svo starfshóp sérfræðinga frá Háskóla Íslands, Veðurstofunni og Hafrannsóknastofnun ásamt fulltrúum ráðuneyta til þess að fara yfir stöðu þekkingar og leggja fram tillögur um vöktun og viðbrögð og þá er AMOC þungamiðjan í því starfi en um leið tekur það til annarra loftslagsvendipunkta sem snerta sérstaklega Ísland. Nú hefur hópurinn lokið mati á stöðu þekkingar og mun skila tillögum um vöktun og viðbrögð líklega um miðjan nóvember.

Nú síðast í október boðaði ég til sviðsmyndaæfingar fyrir fulltrúa þvert á stjórnkerfi þar sem við æfðum viðbrögð við veikingu eða hruni hringrásarinnar. Þetta er auðvitað alþjóðleg áskorun. Þetta er ekki eitthvað sem Ísland getur leyst eitt síns liðs. Umfjöllun þjóðaröryggisráðs vakti athygli erlendis og Ísland hefur þannig tekið sér ákveðið dagskrárvald og sett loftslagsmál og öryggi í samhengi. Bretland er farið að gera það líka og það er athyglisvert að fylgjast með því hvernig nýr utanríkisráðherra Bretlands talar um loftslagsáhættu sem þjóðaröryggisógn. Ég hef reynt að nýta þennan meðbyr til þess að efna til samstarfs við fremstu vísindamenn heims, koma málinu á dagskrá, t.d. á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, og þrýsta á aðgerðir á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Þar var vel tekið í tillögu okkar um sameiginlegt áhættumat og vöktun fyrir Norðurlöndin sem verður unnið árið 2027.

Hv. þingmaður spyr líka um afleiðingar fyrir Ísland og hvað liggi fyrir. Alþjóðlegar rannsóknir benda til kaldara loftslags, stormasamari vetra, meiri hafíss og breytinga á úrkomumynstri. Þetta myndi hafa áhrif á allar samgöngur og orkukerfið okkar, ekki síst vatnsaflið, á landbúnað, fiskstofna og byggð um allt land. Ég vil þó undirstrika að sértæk áhrif fyrir Ísland hafa enn ekki verið metin með fullnægjandi hætti. Þetta er eitt af því sem þarf að gera og það er þá eitt af næstu skrefum: að greina staðbundnar sviðsmyndir, greina áhrif á efnahag og atvinnugreinar o.s.frv. En það sem kannski skiptir máli hér er að þessi verstu mögulegu áhrif loftslagsbreytinga á AMOC eru ekki óumflýjanleg. Öruggasta leiðin til þess að draga úr loftslagsáhættu er að dregið verði hratt úr losun á heimsvísu. Hér heima erum við að þokast í rétta átt en þetta gengur allt of hægt. Það er margt sem gengur vel í heiminum. Við sjáum orkuskiptabyltinguna á fleygiferð en við þurfum að draga enn þá hraðar úr losun til þess að lágmarka loftslagsáhættu. Hér getur Ísland sannarlega beitt sér, bæði með því að sýna gott fordæmi innanlands og beita sér af krafti á alþjóðasviðinu.