Loftslagsmál.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu. Rannsóknir á ískjörnum og setlögum sýna að meðalhiti jarðar hefur í gegnum jarðsöguna verið bæði mun hærri og mun lægri en nú. Þrátt fyrir náttúrulegar hitasveiflur hefur verið hröð og viðvarandi hlýnun frá u.þ.b. 1970. Rannsóknir á veltihringrás Atlantshafsins, AMOC, vekja jafnframt áleitnar spurningar um mögulegar afleiðingar verulegrar veikingar hennar, ekki síst fyrir Ísland. Við eigum að taka þessa áhættu alvarlega en greina jafnframt milli staðfestra vísindalegra niðurstaðna, líkanaspáa og þeirrar óvissu sem enn er til staðar.
Virðulegi forseti. Jörðin er eitt samtengt loftslagskerfi og losun virðir engin landamæri. Ísland stendur undir innan við 0,01% af árlegri koltvísýringslosun heimsins af jarðefnaeldsneyti og iðnaði. Ákvarðanir okkar einar og sér hafa því hverfandi áhrif á mögulega þróun AMOC. Yfir 99% rafmagnsframleiðslu á Íslandi koma frá endurnýjanlegum orkugjöfum og 90% húshitunar einnig. Við erum í fremstu röð meðal þjóða hvað þetta varðar og eigum að vera stolt af því. Það skiptir máli. En við getum gert meira, einkum með aukinni grænni orkuframleiðslu, nýsköpun og tæknilausnum sem nýtast okkur og erlendum ríkjum til aukinna lífsgæða. Loftslagsmálin eru nefnilega ekki einföld. Samkvæmt Alþjóðaorkumálastofnuninni er heildarlosun við notkun jarðgass að meðaltali 35% minni en notkun kola. Það sýnir hvers vegna það þarf að meta raunveruleg heildaráhrif orkukosta í stað þess að útiloka þá fyrir fram. Við eigum því að leggja meiri áherslu á aukna græna orkuframleiðslu, jákvæða hvata og tækniframfarir í stað íþyngjandi boða og banna. Markmiðið hlýtur að vera raunverulegur loftslagsárangur á heimsvísu, aukin verðmætasköpun og betri lífskjör.