Loftslagsmál.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu og hæstv. ráðherra fyrir að vera hér með okkur í dag. Við erum að tala um mál sem er í raun og veru öryggismál inn í framtíðina. Þess vegna vil ég hrósa hæstv. ráðherra fyrir að hafa talað fyrir því á alþjóðavettvangi vegna þess að þetta er dæmi um viðfangsefni sem ekkert eitt ríki leysir heldur þurfum við að sameinast um rannsóknir, upplýsingar og auðvitað líka aðgerðir sem snúa að því að draga úr losun. Þar hefur Ísland, virðulegi forseti, haft ákveðna sérstöðu. Við höfum haft sérstöðu í formi okkar trúverðugleika og getum því kannski haft stærri og hærri rödd heldur en annars. Því skiptir máli fyrir okkur þegar við horfum á þennan trúverðugleika að við höldum áfram að vera í forystu þegar kemur að tækniþróun og orkuskiptum á ólíkum sviðum.
Mig langar að beina þeirri spurningu til hæstv. ráðherra hvernig hann sjái t.d. stór verkefni, eins og orkuskipti á hafi, sem eru um 17% af okkar samfélagslosun, raungerast. Við vitum að það eru tækifæri, t.d. þegar kemur að minni bátum, t.d. þegar við horfum á strandveiðarnar, en það er samt eitthvað sem þarf að horfa á í samhengi við rafvæðingu hafna. Það er ákveðin fjárfesting í upphafi sem þarf að eiga sér stað þannig að það er alveg ljóst að það gerist ekki af sjálfu sér. Síðan þegar við horfum á stóru skipin okkar, fiskveiðiflotann, þá er orkan eitt en svo þarf að passa að horfa á hvað það kostar, hvort orkan verði hagkvæm þegar við erum að horfa á rafeldsneytið t.d., hvað það kostar að endurhanna skipaflotann, hvernig veiðileiðir og -aðferðir munu breytast. Ég verð að segja að mér finnst þessa heildarmynd skorta algerlega í umræðunni og hún er lykillinn. Það að greina hana (Forseti hringir.) og skilja og taka raunhæf skref fram á við er að mínu mati lykillinn að því að við séum með ábyrga umræðu um þennan málaflokk. Því vil ég beina því til hæstv. orkumálaráðherra (Forseti hringir.) að upplýsa okkur um hvernig hann sjái þetta færast fram á við í samhengi við okkar trúverðugleika á þessum mikilvæga vettvangi.
(Forseti (HildS): Forseti beinir því til hv. þingmanna að virða ræðutíma.)