Loftslagsmál.
Frú forseti. Mig langar að byrja á að þakka fyrir þessa umræðu. Þegar við ræðum AMOC erum við ekki bara að ræða eitthvert vísindalegt fyrirbæri eða einhverja fjarlæga loftslagsvá, við erum líka að ræða eitt af þeim náttúrulegu kerfum sem hafa sannarlega mótað þau lífsskilyrði sem við búum við hér á Íslandi. Við búum í landi þar sem hafið er ekki bara hluti af landslaginu, það er undirstaða atvinnulífsins, matvælaframleiðslunnar, samgangna og efnahagslegrar velferðar stórs hluta þjóðarinnar. Um það er ekki deilt. Auðvitað eiga sumir landshlutar meira undir en aðrir og auðvitað eru sum samfélög þannig gerð að þau byggja afkomu sína nánast alfarið á auðlindum hafsins þannig að breytingar á hafstraumum og sjávarskilyrðum eru því ekki bara eitthvert fjarlægt framtíðarefni heldur eitthvað sem við þurfum að taka alvarlega þegar við horfum til framtíðar. Við þurfum auðvitað að skilja hvaða áhrif þetta getur haft, bæði á þessar atvinnugreinar og undirstöðuskilyrði verðmætasköpunar á Íslandi. Hvað þýðir hækkun hitastigs sjávar og hvernig getur það t.d. haft áhrif á dreifingu fiskstofna? Við vitum auðvitað ekki með fullri vissu, eins og komið hefur fram hér í dag, hvernig þróun AMOC verður og hvort eða hvenær hugsanlegur vendipunktur getur náðst. Við vitum auðvitað að ef það myndi gerast hefði það miklar afleiðingar.
Þess vegna er að mínu mati ágætt að vera búin undir ýmsar sviðsmyndir og við eigum ekki að bíða eftir því að vísindin geti sagt okkur nákvæmlega hvenær hættan verður að veruleika. Við eigum að fjárfesta áfram í rannsóknum. Við eigum að vakta stöðuna og vera viðbúin. Því fagna ég því hvernig hæstv. ráðherra hefur haldið á málinu og við í hv. umhverfis- og samgöngunefnd höfum sömuleiðis átt umræður um þessar sviðsmyndir og undirstrikað mikilvægi þess að við séum hreinlega viðbúin ef hlutirnir skyldu raungerast.