158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

Loftslagsmál.

[14:47]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Það er rétt að byrja á að þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni fyrir að óska eftir þessari umræðu, sem mér sýnist nú vera fyrst og fremst um AMOC-hafstrauminn og þessa veltihringrás í Norður-Atlantshafinu. Fyrir kannski einhverjum — ja, það er örugglega hægt að kalla það fyrir 40 árum núna, þegar maður var í menntaskóla, var mikið verið að tala um Golfstrauminn. Við þurfum að hafa í huga hins vegar að þetta er svolítið annað fyrirbæri. Golfstraumurinn er meira í efri lögum sjávar og a.m.k. þegar maður lærði þetta í menntaskóla fyrir 40 árum þá var talað um að Golfstraumurinn væri kannski að leiða um 50% af hitaorkunni upp að Íslandsströndum en lægðagangurinn væri síðan með hin 50% og þetta væri það sem mótaði okkar veðurfar. Við sjáum hversu gjörólíkt það er hvorum megin við Atlantshafið á sömu breiddargráðu, annars vegar á Grænlandi og síðan aftur í Norður-Noregi þar sem manni sýnist oft vera jafnvel miklu hlýrra en hjá okkur, sem er þó miklu norðlægara. Við sjáum hvað þetta veðurfar hefur gríðarleg áhrif, straumarnir í hafinu og síðan aftur lægðagangurinn eins og hann liggur.

Það er kannski rétt líka að geta þess að á Norðurlandaráðsþinginu í síðustu viku var töluverð umræða um þetta fyrirbæri og mér sýnist að á vettvangi Norðurlandaráðs verði farið í meiri vinnu um AMOC-veltihringrásina vegna þess að auðvitað hefur hún mögulega mikil áhrif á öll Norðurlöndin, myndi ég halda, kannski einna minnst á Finnland en klárlega hin, sérstaklega við Norður-Atlantshafið.

Frú forseti. Þetta eru tvær mínútur um umræðuefni sem er svo stórt að ég sé mér ekki fært að fara sérstaklega djúpt í það.