Loftslagsmál.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu og hæstv. ráðherra fyrir sitt framlag hér í umræðunni og fyrir sköruglega framgöngu í málefnum sem tengjast AMOC. Það hefur vakið athygli á heimsvísu hvernig Ísland lítur á þessa mögulegu ógn og hvernig viðbragðið hefur verið í takt við hana. Það var athyglisvert að heyra Johan Rockström, einn fremsta vísindamanna á sviði loftslagsmála, segja á nýlegum fyrirlestri í Háskólabíói að við værum komin að „ekki horfa upp“-augnabliki þegar kemur að AMOC og vísaði þar í kvikmynd sem fjallaði um að loftsteinn sem myndi útrýma lífi á jörðinni væri að nálgast jörðina en stjórnvöld neituðu að hlusta á vísindamennina, neituðu að sjá og viðurkenna gögnin og neituðu að bregðast við. Það endaði ekki vel. Þegar afleiðingarnar geta orðið eins alvarlegar og gögn benda til þá getum við ekki beðið eftir fullri vissu, við verðum að bregðast við. Það hefur hæstv. ráðherra gert með sinni framgöngu og nú þurfa fleiri leiðtogar heimsins að horfa í ógnina sem steðjar að vegna loftslagsmála og bregðast við í samræmi við hana.
En mig langar að nýta tækifærið og heyra sjónarmið hæstv. ráðherra um hvernig ríkisstjórnin ætti að beita sér í því að auka þekkingu almennings á þessum málum. Að mínu mati þarf Ísland að ala af sér mikla sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum sem tengjast loftslagsmálum og hafstraumum því við þurfum einfaldlega að vera á meðal öflugustu talsmanna aðgerða, nýsköpunar og þekkingaröflunar á sviði loftslagsmála og það gerist ekki nema við vekjum áhuga og fræðum. Eins langar mig að heyra hvernig ráðherra telur að vestnorrænu löndin geti beitt sér í sameiningu á þessu sviði en nýlega samþykkti Vestnorræna ráðið ályktun um að ráðherrar landanna þriggja sem fara með málefni umhverfis og vísinda hittist og ræði um AMOC og hvernig löndin geti unnið saman í þessum málum.