Loftslagsmál.
Virðulegur forseti. Það er svo vont við þessa umræðu að það eru svo margir sem telja að það sé bara hægt að afgreiða hana með því að vísa til vísindamanna og sérfræðinga og að það séu bara allir vísindamenn á einu máli um þessi mál. Það er auðvitað ekki þannig. Þeir vísindamenn sem hafa núna í áratugi verið að spá miklum hamförum vegna hlýnunar jarðar, hamförum fyrir AMOC-strauminn, hefur í rauninni orðið lítið ágengt með sínar spár. Það verður að draga það fram og halda því á lofti líka að það eru vísindamenn sem hafa verið að gagnrýna þessar spár og gera það á vísindalegum grunni, m.a. með því að benda á að það er mikil oftrú á tölvulíkönum og tölvulíkön hafa nú farið að batna síðustu ár. Það er líka gagnrýnt að það sé skortur á einhverju eðlisfræðilegu samhengi. En síðast en ekki síst, sem er kannski áhugaverðast við okkur stjórnmálamennina, er að vísindamenn hafa verið að benda á að það eru miklir fjárhagslegir hagsmunir undir og oft er verið að draga upp heimsendaspár til að tryggja áframhaldandi rannsóknarstyrki og fjármagn í milljarðatali fyrir þessar rannsóknir.
Ég nefndi hér í fyrri ræðu minni loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna eða IPCC. Aðrir vísindamenn, m.a. við bresku veðurstofuna og háskóla í Bandaríkjunum, hafa reynt að stemma stigu við þessum hræðsluáróðri. Það sem hins vegar skiptir máli í íslenska samhenginu er auðvitað að líta til þess sem við höfum verið að gera. Við eigum auðvitað að ræða það hvort þessar aðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa undanfarið ár gripið til séu skynsamlegar þegar kemur að loftslagsmálum. Ég veit að hæstv. ráðherra er sammála mér í því að þær hafa verið misskynsamlegar og sumar ákaflega kostnaðarsamar og óraunhæfar og í rauninni kannski ekki þá skynsamlegar þar af leiðandi.
Ég vil bara benda á að lokum að það sem Íslendingar hafa verið að gera og hefur virkað best í þessu er hitaveituvæðingin okkar, það er virkjun (Forseti hringir.) fallvatna þar sem við höfum kostað miklu til. Allt þetta höfum við gert án þess að vísa til loftslagsmála heldur vísum við til efnahagslegrar nauðsynjar. Við fórum í þessar aðgerðir af því að þær voru hagkvæmar og þær voru skynsamlegar. Við eigum að halda áfram að vera í skynsamlegum aðgerðum þegar kemur að loftslagsmálum almennt, hvort sem það lýtur að hafstraumum eða öðru.
(Forseti (HildS): Forseti beinir því að nýju til hv. þingmanna að virða ræðutíma.)