Loftslagsmál.
Virðulegi forseti. Þetta er búin að vera mjög góð umræða. Að tala skýrt um þessa hættu er ekki einhvers konar svartagallsraus eða hræðsluáróður heldur þvert á móti ábyrgir stjórnarhættir og það er alveg rétt, það er töluverð óvissa, ekki nema miðlungsvissa um að hún muni ekki hrynja, sagði hér hv. þm. Sigríður Á. Andersen. Ekki nema miðlungsvissa um að hún muni ekki hrynja og þetta er nokkurn veginn í takti við það sem komið hefur frá IPCC. Og mér finnst þetta vera stórkostlega mikil áhætta þegar við horfum til þeirra hamfarakenndu afleiðinga sem veiking eða hrun AMOC getur haft. Það er grundvallaratriði í öllu áhættumati að horfa bæði á líkur á því að atburðir eigi sér stað og svo alvarleika afleiðinganna og ef afleiðingarnar eru mjög slæmar sættum við okkur illa við jafnvel minnstu áhættu. Við förum t.d. ekki upp í flugvél jafnvel þótt það séu ekki nema 1% líkur á að hún hrynji. Það er bara allt of mikil áhætta.
Almennt hefur hinn vísindalegi meginstraumur þegar kemur að loftslagsrannsóknum haft nokkurn veginn rétt fyrir sér. Við sjáum hins vegar, og það er vísað til þess svolítið óbeint hérna stundum, að verstu sviðsmyndirnar hafa t.d. verið teknar út úr sviðsmyndagreiningum IPCC. Hvers vegna er það? Jú, vegna þess að hnattrænar aðgerðir vegna loftslagsbreytinga eru að ná árangri. Þær eru eftir allt saman að virka. Þess vegna lítur sumt aðeins betur út núna en það kannski gerði fyrir 20 árum.
Samanlögð losun þeirra ríkja sem losa mjög lítið á heimsvísu, þ.e. minna en 2%, er samtals 32–36% af heildarlosun sem segir okkur að ef öll ríki sem losa lítið, t.d. öll ríki sem losa jafn lítið og Ísland, myndu nota það sem afsökun fyrir því að gera ekki neitt myndi það torvelda verulega allar aðgerðir á hnattræna vísu. Þetta segir okkur að við þurfum auðvitað að halda áfram af fullum þunga að ná árangri í (Forseti hringir.) loftslagsmálum og ég tek undir það sem fram hefur komið í mörgum ræðum hér að í því felast tækifæri, eins og t.d. bara í málinu sem ég mæli fyrir hérna á eftir, sem snýst um orkuskipti, sem eru til þess fallin að draga úr losun en um leið styrkja samkeppnishæfni, áfallaþol og hagkvæmni í orkukerfinu.