breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum á sviði orkumála vegna innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2018/2001, RED II, um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Frumvarpið var samið í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu í samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun og Raforkueftirlitið. Áform um lagasetninguna og drög að frumvarpi hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda en málið hefur tekið ýmsum breytingum síðan. Í samráðskafla greinargerðarinnar er greint frá umsögnum og viðbrögðum við þeim.
Innleiðingu frumvarpsins er ætlað að styðja við orkuskipti með því að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda en margar af veigamestu kröfum tilskipunarinnar snúa að sjálfbærniviðmiðum og rekjanleika eldsneytis.
Einföldun regluverks og ferli leyfisveitinga ásamt aðgerðum til að auka orkuöflun hafa verið leiðarstef í tíð þessarar ríkisstjórnar og með frumvarpinu eru stigin stærri skref til samþættingar á afgreiðslu virkjunarleyfis og annarra leyfa og heimilda sem virkjunarframkvæmdir kalla á heldur en lágmarkskröfur tilskipunarinnar kveða á um. Þetta er svona jákvæð gullhúðun, getum við sagt. Lagt er til að hámarksmálsmeðferðartími stjórnvalda vegna veitingar virkjunarleyfis og tengdra leyfa verði í fyrsta skipti skýrlega bundinn í lög sem er í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar sem koma fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins um að ferli leyfisveitinga verði einfaldað og tímafrestir lögbundnir. Auk þess er byggt á stefnu sem mörkuð var með lögum nr. 30/2026, sem við afgreiddum á síðasta þingi, sem fólu í sér breytingar á 12 lagabálkum til að einfalda og samræma leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á þremur lagabálkum, þ.e. raforkulögum, nr. 65/2003, lögum um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl., nr. 30/2008, og lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013.
Meðal helstu breytinga frumvarpsins eru eftirfarandi:
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003, sem felur í sér innleiðingu nýrra hugtaka, einkum rétti notenda endurnýjanlegrar raforku sem þeir framleiða sjálfir og orkusamfélaga. Með þessu er verið að ryðja úr vegi stjórnsýslulegum og tæknilegum hindrunum til að almenningur og fyrirtæki geti framleitt, neytt, geymt og selt eigin endurnýjanlega raforku. Til að styðja þessa iðju verður dreifiveitum skylt að vinna með þeim að mælingum og uppgjöri og einfaldað ferli tekið upp við nettengingu smærri framleiðslueininga, sem eru undir 10,8 kW. Þá eru lagðar til breytingar sem miða að einfölduðu og samræmdu leyfisferli vegna virkjunarframkvæmda sem felur í sér að umsókn um virkjunarleyfi verði gerð að einum samþættum farvegi fyrir önnur leyfi og heimildir sem framkvæmd kann að kalla á, svo sem nýtingarleyfi, starfsleyfi eða heimild til breytingar á vatnshloti. Við leggjum svo til að allt þetta, sem sagt sameinað virkjunarleyfi, starfsleyfi, nýtingarleyfi og heimild til breytingar á vatnshloti, verði sameinað í eitt leyfi að jafnaði og innleiddur 18 mánaða hámarksmálsmeðferðartími á það. Í þessu felst líka að þetta er allt saman ein stjórnvaldsákvörðun og einn kærupunktur. Í þessu felst gríðarleg einföldun og þetta getur dregið stórkostlega úr flækjum. Auk þessa erum við að ganga þannig lengra í að stytta afgreiðslutíma heldur en leiðir af Evróputilskipuninni sjálfri. Hún gengur út á tveggja ára hámarksfrest og gerir ekki endilega ráð fyrir að þessi vöðull, ef svo má segja, sé gerður að einni stjórnvaldsákvörðun.
Breyting á lögum um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl. nr. 30/2008. Helsta breytingin er sú að verið er að útvíkka gildissvið upprunaábyrgðakerfisins þannig að það nái ekki einungis til raforku heldur einnig til gass, svo sem vetnis, ásamt hitun og kælingu. Jafnframt er kveðið er á um að útgáfa, framsal og afskráning upprunaábyrgða sé rafræn og að upprunaábyrgðir skuli gilda í 12 mánuði frá því að viðkomandi orkueining var framleidd. Þá er kveðið á um að upprunaábyrgðir sem ekki hafa verið afskráðar falli úr gildi eigi síðar en 18 mánuðum frá framleiðslu orkueiningarinnar.
Breyting á lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013, felur í sér að lagt er til að gildissvið laganna takmarkist ekki eingöngu við samgöngur á landi heldur taki einnig almennt til viðeigandi krafna um sjálfbærni, samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, vottun og rekjanleika eldsneytis. Veigamesta breytingin lýtur að lögfestingu sérstakrar skráningarskyldu í sameiginlegan gagnagrunn Evrópusambandsins sem hefur þann tilgang að rekja uppruna, sjálfbærnieiginleika og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og koma í veg fyrir að endurnýjanlegt eldsneyti sé tvítalið. Þá verður Umhverfis- og orkustofnun falið skýrt eftirlitshlutverk, m.a. til að tryggja að farið sé að þessum kröfum.
Almennt hefur efni þessa frumvarps jákvæð áhrif á samfélagið þar sem lagt er til að dregið verði úr íþyngjandi stjórnsýsluferlum, stuðlað að skilvirkari stjórnsýslu með lögbundnum frestum og meiri samþættingu. Talið er að frumvarpið feli í sér skýrari og samræmdari umgjörð um nýtingu endurnýjanlegrar orku og það styður markmið um orkuskipti, minni losun gróðurhúsalofttegunda og sjálfbæra þróun.
Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. atvinnuveganefndar.