breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála.
Frú forseti. Ég vil byrja á að hrósa hæstv. ráðherra fyrir millitímann í ræðunni. Ég hugsa að hann hafi farið upp í svona 230–240 orð á mínútu á tímabili. Þetta er mikilvægt og ég held svona almennt, það á auðvitað eftir að klára málið hérna í þinginu, en þetta er a.m.k. mjög í anda þess sem hér stendur, sem er verið að fást við í þessu máli hér. Það er búið að reyna ýmislegt á síðustu árum og þetta er svona enn ein tilraunin og vonandi er verið að minnka aðeins gullhúðunina eins og ég skil hæstv. ráðherra að einhverju leyti.
Mig langar rétt að koma kannski með flutningskerfi raforku sem hefur nú verið hérna bara frá fyrstu vikum eða mánuðum þess sem hér stendur, sem hefur tekið þátt í þeirri umræðu hér í þingsal í tíu ár og þetta hefur oft verið eða var til að byrja með mjög einmanaleg umræða, það voru ekki margir sem tóku þátt í henni. Í þessu ferli núna, hvernig gæti þetta mál komið inn á það að við gætum ýtt undir og hraðað þá og gert skilvirkari leiðir mögulegar sem snúa að uppbyggingu á flutningskerfi raforku? Það hefur náðst á síðustu árum árangur á Norðurlandi, þ.e. að tengja saman frá Fljótsdalsstöð og til Akureyrar um Kröflulínu 3 og Hólasandslínu, líka á milli Kröflu og Akureyrar, og haft mikil áhrif þar. Þar hafði ekkert gerst raunverulega bara í 20 ár og ekkert hægt að gera á því svæði en það fór af stað þegar ákvarðanir komu um þær línur. Blöndulína 3, Holtavörðulína 1 og 3 um Borgarfjörðinn. Er eitthvað í þessu máli sem gæti — eða væri hægt að byggja á svipuðum grunni annað mál sem gæti verið á svipuðum nótum? Væri það eitthvað sem hæstv. ráðherra sér fyrir sér í þessari umræðu á þessu kjörtímabili þar sem við erum að eiga við þessi mál?