breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála.
Frú forseti. Það verður spennandi að sjá það frumvarp í nóvember, þegar það kemur inn í samráðsgátt og síðan til umræðu hér í þingsal. Ég held að frá fyrstu ræðu um þetta mál, í byrjun árs 2017, hafi ég talað um þetta sem þjóðaröryggismál sem snýr að flutningskerfinu, möskvun þess og styrk. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að fá það mál hingað inn sem allra fyrst og líka auðvitað til að hámarka nýtingu á þeirri orku sem er þó framleidd í landinu, sem hefur verið vandamál um langan tíma og við þekkjum kannski besta dæmið eins og Blönduvirkjun með 20–30 föst megavött þar inni áratugum saman. Þannig að þetta er gríðarlega mikilvægt.
Við vonumst til, eða ég vonast til, að þetta mál hafi jákvæð áhrif á orkuframleiðslu á Íslandi og það er aldrei of oft kveðið hversu mikilvæg þessi raforkuframleiðsla er á Íslandi og þau skref sem voru tekin hér að stóru leyti með stofnun Landsvirkjunar 1965, hvaða þróunaráhrif það hefur haft á íslenskt samfélag og efnahag okkar Íslendinga, hvað þá núna síðustu ár þegar allur heimurinn vill eiga þessa grænu orku sem við getum framleitt og höfum framleitt í þessa áratugi. Við erum í dag á hvert mannsbarn um mestu orkuframleiðendur í heimi en líka eina lokaða græna orkukerfið í heiminum sem er byggt fullkomlega á þessu. Þannig að ég hvet bara hæstv. ráðherra til allra góðra mála sem tengjast þessu. Það er leiðinlegt að sjá en ég held að það sé komið á réttan stað núna, með þetta stækkunarfrumvarp á þeim verkefnum sem eru í gangi, eins og Sigöldu, sem var ákveðið með rammaáætlun 3 fyrir nokkrum árum, kom inn í þingið og var samþykkt á skömmum tíma. Ég vona svo sannarlega að þetta mál haldi áfram, að við getum þá staðið undir þeim lífskjörum sem við búum við í dag sem við skulum aldrei gleyma að raforkuframleiðslan okkar hefur haft gríðarleg áhrif á.