158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála.

283. mál
[15:20]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil segja varðandi raforkueftirlit almennt að nú er náttúrlega í fyrsta skipti komið sjálfstætt Raforkueftirlit til hliðar við Umhverfis- og orkustofnun og þar er verið að vinna gríðarlega mikilvæga vinnu. Það sem kannski lendir á Raforkueftirlitinu og hefur snertingu við þetta frumvarp er að það þarf að hafa eftirlit með því að dreifiveitur hindri ekki rétt þessara nýju aðila til framleiðslu, deilingar og sölu raforku. Það skiptir gríðarlegu máli að styrkja þetta eftirlit með raforku og eðlilegt að það sé gert með raforkueftirlitsgjaldi. Við erum ekki að leggja á nýjan almennan skatt með þessu. Það sem við erum að gera í rauninni er að við erum að leggja til að Umhverfis- og orkustofnun fái skýra lagaheimild til þess að innheimta gjöld vegna tiltekinna eftirlits- og stjórnsýsluverkefna sem tengjast endurnýjanlegu eldsneyti. Þá erum við t.d. að tala um þessa yfirferð gagna um sjálfbærni, samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og rekjanleika eldsneytis. Svo er það ráðherra sem setur gjaldskrá að fengnum tillögum Umhverfis- og orkustofnunar og þá þurfa auðvitað gjöldin að byggja á rökstuddri kostnaðaráætlun, þau mega ekki vera hærri en kostnaðurinn við viðkomandi verkefni þannig að þetta er í rauninni bara leið til að tryggja fjármögnun nauðsynlegs eftirlits. Við erum hérna bæði að tala um Raforkueftirlitið og þá eldsneytiseftirlitið sem liggur hjá Umhverfis- og orkustofnun og sá kostnaður sem kann að vera fleytt yfir á neytendur ætti að vera óverulegur, þetta eru ekki þannig fjárhæðir að áhrifin verði mikil. Svo vil ég líka — það er eitthvað til að koma inn á í seinna andsvari.