158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála.

283. mál
[15:22]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Hann skýrir þá kannski í sínu seinna svari hvernig við ætlum að tryggja að gjaldinu verði stillt í hóf. Nú er í frumvarpinu nokkuð opið fyrir reglugerðarheimildir fyrir ráðherrann og maður getur raunverulega sagt að þær séu víðtækar í því samhengi. Ráðherra á að ákveða stigvaxandi hækkun hlutdeildar endurnýjanlegrar orku í samgöngum. Gildandi lágmark er sem sagt 5% og ég held að það væri svo sem ágætt að hafa sýn á það hvernig menn sjá það fyrir sér þróast til hærri prósentu og sérstaklega ef íblöndunarefni eru dýr þá er auðvitað mikilvægt að við höfum hugmynd um hvernig þetta á að snúa. Einnig langar mig til þess að fá ráðherra til þess að varpa aðeins ljósi á kostnaðarskiptingu innan dreifikerfisins af því að við verðum að tryggja að nýtt fyrirkomulag leiði ekki til þess að kostnaður við sameiginlegt dreifikerfi færist yfir á þá sem geta ekki framleitt eigin raforku. Einhverjir af þeim sem eru líka að framleiða orkuna og óheimilt er í rauninni að rukka þá sérstaklega ef þeir nýta hana á framleiðslustað í raun — hvernig ætlum við að tryggja að þeir aðilar sem eru ekki í orkuframleiðslu þurfi ekki að bera hallann af allri uppbyggingu á dreifikerfinu? Þetta er kannski það helsta sem ég hefði áhuga á að ráðherrann myndi skoða nánar í seinni umferð.