breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála.
Frú forseti. Við fjöllum hér um frumvarp um breytingu á ýmsum lögum á sviði orkumála, góð umræða sem hefur átt sér stað hérna í upphafi umræðunnar og gaman að hlusta á hana. En það er mikilvægt að ræða frumvarp á borð við þetta út frá fleiri sjónarhornum en þeim einum að hér sé verið að innleiða tilteknar Evrópureglur í íslenskan rétt. Þetta er stærra mál en svo.
Orkumál eru ekki bara eitthvert tæknilegt viðfangsefni, þau snúast um atvinnuuppbyggingu, samkeppnishæfni, búsetuskilyrði, öryggi og framtíðarmöguleika samfélaga um allt land. Þegar ég horfi á þetta frumvarp út frá hagsmunum ýmissa landshluta, t.d. þess kjördæmis sem ég sit fyrir hér á þingi, þá velti ég fyrir mér ýmsum hlutum, t.d. hvernig við tryggjum að þau tækifæri sem felast í íslenskum orkuauðlindum og orkuskiptum verði ekki aðeins til á blaði heldur skili sér raunverulega í ávinningi fyrir byggðir landsins.
Norðvesturkjördæmi býr sem betur fer yfir töluverðum orkuauðlindum. Þar erum við með vatnsafl og jarðhitaauðlindir og sem betur fer hefur jarðhitaleit síðustu ára verið að skila árangri þannig að við sjáum tækifæri þar og þurfum að halda áfram að sækja fram þar, ég nefni Gálmaströndina sem dæmi, og við höfum tækifæri til frekari nýtingar endurnýjanlegrar orku og það eru fyrirtæki sem þurfa sannarlega á öruggu og samkeppnishæfu orkuverði að halda.
Við búum jafnframt við þær áskoranir að raforkuinnviðir eru ekki alls staðar nægilega sterkir, afhendingaröryggi getur verið mismunandi eftir svæðum og möguleikar til atvinnuuppbyggingar ráðast oft af því hvort næg orka sé til staðar. Þetta eru að mínu mati stærstu þröskuldar samfélagsins, það sem stendur kannski helst uppbyggingu fyrir þrifum, t.d. á Vestfjörðum, ásamt auðvitað samgöngumálunum sem við erum svo sem ekki að ræða hér í dag. Þess vegna skiptir máli hvernig við útfærum þessar breytingar vegna þess að orkan á að mínu mati líka að geta skapað tækifæri í heimabyggð.
Forseti. Eitt af því sem mér finnst áhugaverðast í þessu frumvarpi eru ákvæðin um orkusamfélög og aukna möguleika einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga til að framleiða, geyma, nota og selja eigin raforku. Þetta er þróun sem getur haft verulega þýðingu fyrir dreifðari byggðir. Við getum t.d. hugsað okkur sveitarfélag sem vill kanna möguleika á eigin orkuframleiðslu. Við getum hugsað okkur fyrirtæki á landsbyggðinni sem ætla sér að fjárfesta í einhverjum orkukostum, smávirkjunum, sólarorku eða öðru og þau geta þá metið eigin orkuþörf. Við getum líka verið með framsækna einstaklinga sem vilja taka höndum saman um orkuframleiðslu og deila ávinningnum. Það er mikilvægt að slíkt verði raunhæfur kostur en ekki aðeins möguleiki á einhverju blaði. Með frumvarpinu er m.a. verið að skapa skýrari lagaramma um orkusamfélög, jafningjaviðskipti með endurnýjanlega raforku og kveðið á um að dreifiveitur eigi að vinna með orkusamfélögum og greiða fyrir mælingum, gagnaskiptum og uppgjöri. Að mínu mati eru þetta jákvæð skref í átt að virkari þátttöku almennings og atvinnulífs í orkukerfinu okkar.
Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir að raunveruleg yfirráð orkusamfélagsins séu almennt í höndum félagsmanna á sama dreifisvæði eða spennustigi og orkuvinnslan. Jafnframt er getið um að ráðherra geti heimilað að mæla fyrir um rýmri landfræðilega afmörkun í dreifbýli og þetta er mikilvægt. Það væri sannarlega óheppilegt ef reglurnar um orkusamfélög yrðu þannig úr garði gerðar að þær hentuðu fyrst og fremst í þéttbýli en gerðu þátttöku erfiðari í dreifbýli. Aðstæður á landsbyggðinni eru einfaldlega ólíkar. Byggðirnar eru strjálli, vegalengdirnar eru meiri og tengingar við dreifikerfið geta verið með öðrum hætti. Ég tel því mjög mikilvægt að ráðherra geti nýtt þetta svigrúm þegar reglugerðirnar verða útfærðar og gæti þess að íbúar, sveitarfélög og fyrirtæki í dreifbýli hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku.
Mig langar líka aðeins að tala um leyfisveitingarnar og þann flöskuháls sem þær hafa kannski orðið, svona seinustu árin hið minnsta, og ég vil fagna því að hér er um að ræða umtalsverðar breytingar á leyfisveitingum vegna virkjana. Með frumvarpinu er lagt til að umsókn um virkjunarleyfi geti jafnframt tekið til annarra nauðsynlegra leyfa. Þá er gert ráð fyrir að málsmeðferð ljúki innan 18 mánaða frá því að fullnægjandi umsókn liggi fyrir. Fyrir minni virkjanir og tilteknar endurbætur á eldri virkjunum er miðað við eitt ár. Mér finnst þetta mikilvægt framfaraskref, gríðarleg einföldun sem hefur verið kallað eftir víða, enn eitt skref í átt að einföldun sem þessi ríkisstjórn fer fyrir. Við þekkjum það víða um land að hugmyndir um atvinnuuppbyggingu og nýtingu staðbundinna auðlinda geta setið árum saman í flóknum leyfisferlum. Það er ekki sjálfbært fyrir atvinnulífið. Það er ekki ásættanlegt gagnvart sveitarfélögunum sem vilja að sjálfsögðu skapa ný tækifæri. Við eigum að sjálfsögðu að gera strangar kröfur um umhverfisvernd, náttúruvernd og vandaða málsmeðferð, en við eigum líka að gera kröfur um skilvirka stjórnsýslu. Það er hægt að fara vel með náttúruna en tryggja samt að umsóknir fái afgreiðslu innan fyrirsjáanlegs tíma. Fyrir Norðvesturkjördæmi skiptir þetta ofboðslega miklu máli. Þar eru möguleikar til frekari nýtingar vatnsafls og jarðhita en slík verkefni verða ekki að veruleika ef óvissan í leyfisveitingum er of mikil. Mig langar þá líka að leggja áherslu á að lögfestir frestir þurfa að haldast í hendur við nægilega faglega getu hjá stjórnvöldum. Annars er hætt við að við flytjum biðina einfaldlega á milli borða í stjórnsýslunni.
Forseti. Mig langar að staldra við eitt atriði sem ég tel að þurfi að fá smá athygli í þessari umræðu og í allri umræðu um orkustefnu Íslands. Það er ekki nóg að horfa á það hversu mikil orka er framleidd í landinu. Við þurfum líka að horfa á það hvernig hún kemst til notenda. Það skiptir litlu máli fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni að búa í nágrenni við miklar orkuauðlindir ef raforkukerfið getur ekki tryggt þeim næga orku með viðunandi afhendingaröryggi. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir mitt kjördæmi þar sem raforkuinnviðir og flutningsgeta geta verið mjög takmarkandi þáttur í uppbyggingu atvinnulífs. Við eigum ekki að sætta okkur við að fyrirtæki geti ekki vaxið eða ný störf geti ekki orðið til vegna þess að innviðirnir hafi einfaldlega ekki fylgt eftir. Þetta snýst í grunninn um algjöra byggðastefnu, það hvernig við tryggjum að verðmætasköpun geti átt sér stað og jafnræði á milli landshluta. Þetta snýst líka um það hvort unga fólkið geti séð fyrir sér framtíð í heimabyggð, hvort fyrirtæki geti fjárfest og hvort sveitarfélög geti laðað að sér nýja starfsemi. Þess vegna legg ég áherslu á að við innleiðingu þessa frumvarps verði ekki bara horft út frá þeirri stærri vinnu sem þarf að eiga sér stað heldur líka að við lítum til uppbyggingar raforkuinnviða. Ég heyrði það hér áðan að ráðherra hefur boðað mörg mál sem snúa að því og ég hlakka mikið til að takast á við þau hér í þinginu.
Forseti. Mig langar líka að víkja aðeins að þætti frumvarpsins sem snýr að endurnýjanlegu eldsneyti og auknum kröfum um sjálfbærni, rekjanleika og upplýsingagjöf. Mér finnst markmiðin bara nokkuð skýr og fagna þeim. Við ætlum að auka hlut endurnýjanlegrar orku í samgöngum og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er markmið sem skiptir miklu máli að við náum, sérstaklega eins og rætt var um hér áðan varðandi þjóðaröryggi okkar og sjálfbæra nýtingu okkar og það að við getum staðið á eigin fótum þegar kemur að því að tryggja það að knýja farartækin okkar og auðvitað skipaflotann líka.
Ég tel mjög mikilvægt að við stöndum við þessi markmið en við þurfum líka að horfa til aðstæðna fólks og atvinnulífs. Það er ekki hægt að nálgast orkuskipti í dreifðum byggðum með nákvæmlega sama hætti og á höfuðborgarsvæðinu. Við vitum að íbúar landsbyggðanna reiða sig að mjög stórum hluta á einkabílinn. Fyrirtæki í sjávarútvegi, landbúnaði, ferðaþjónustu og flutningum þurfa á áreiðanlegri orku að halda og eldsneyti þangað til við erum komin að orkuskiptunum. Auðvitað eru vegalengdir svolítið öðruvísi og almenningssamgöngur hafa ekki alltaf verið valkostur á þessum svæðum. Vonandi breytist það líka í náinni framtíð. Þannig geta breytingar á eldsneytisverði haft mikil áhrif og sömuleiðis kerfisbreytingar sem snúa að þessum þáttum. Þess vegna þarf að gæta þess að auknar kröfur og nýjar skyldur leiði ekki til óhóflegs kostnaðar sem lendir að lokum á neytendum og atvinnulífi.
Mér fannst gott að heyra umræðuna hér áðan um eftirlit á þessum sviðum. Það skiptir máli að halda vel á spöðunum þar. Í frumvarpinu sjálfu er viðurkennt að nýjar kröfur um skráningu, vottun, sjálfbærni og rekjanleika geti aukið kostnað rekstraraðila og það er mikilvægt að sú framkvæmd verði hófleg og fyrirsjáanleg. Við eigum að stuðla að orkuskiptum og halda áfram á þeirri braut. Það er alveg kýrskýrt og ég styð það markmið heils hugar.
Áður en ég lýk máli mínu er kannski eitt atriði í viðbót sem mig langaði að víkja að. Þegar við erum að breyta reglum um framleiðslu, geymslu, dreifingu og um viðskipti með endurnýjanlega orku er eðlilegt að velta fyrir sér hvort áhrifin geti verið mismunandi eftir búsetu- og atvinnuháttum. Einhver tæknileg breyting í Reykjavík getur skapað nýtt tækifæri í litlu sveitarfélagi. Það sem getur virst vera einföld stjórnsýslubreyting á landsvísu getur auðvitað haft veruleg áhrif á möguleika fyrirtækis í dreifbýli til að fjárfesta og vaxa og við eigum alltaf að hafa þessi gleraugu á, finnst mér, þegar við erum að meta mál, hvort sem það er í nefndastarfi eða hér í þessum þingsal. Mig langar því að hvetja til þess að við fylgjumst sérstaklega með framkvæmd þessara breytinga og metum hvort þær skili ekki alveg raunverulega ávinningi til byggðanna um allt land. Það er ekki nóg að segja að allir hafi sama rétt samkvæmt lögunum ef aðstæður fólks til að nýta þann rétt eru mismunandi.
Forseti. Ég tel að þetta frumvarp feli í sér ýmis tækifæri; tækifæri til aukinnar þátttöku einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga í orkuframleiðslu, tækifæri til einfaldrar stjórnsýslu, skýrari leyfisveitinga og tækifæri til að byggja upp fjölbreyttara og sveigjanlegra orkukerfi. En við megum ekki gleyma því að markmiðið með orkustefnu er ekki bara að framleiða meiri orku eða uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar. Við ætlum líka að nýta markmiðið til að nýta auðlindirnar þannig að þær styrki samfélagið í heild.
Fyrir mig sem þingmann í Norðvesturkjördæmi er mikilvægt að tryggja að fólk sem býr utan höfuðborgarsvæðisins sitji ekki eftir þegar ný tækifæri verða til. Við eigum að geta nýtt staðbundnar auðlindir, byggt upp atvinnulíf, styrkt innviði og skapað störf í heimabyggð. Við eigum að geta gert það með ábyrgum hætti, með virðingu fyrir náttúrunni og með skýrum leikreglum og við eigum að tryggja að orkuskiptin verði ekki enn eitt verkefnið þar sem landsbyggðin leggur til auðlindirnar en ávinningurinn verður eftir annars staðar. Þetta er sú nálgun sem ég tel að þurfi að einkenna umræðuna og ég hlakka til að fylgjast áfram með henni.
Forseti. Ég viðurkenni að ég hefði gjarnan viljað fá þetta góða mál inn í hv. umhverfis- og samgöngunefnd en mér skilst að málið fari í hv. atvinnuveganefnd þannig að ég óska hv. atvinnuveganefnd velfarnaðar í því að fylgja þessu góða máli eftir. Ég mun samt sem áður fylgjast vel með og taka þátt í umræðunni áfram.