breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála.
Frú forseti. Ég hef nú reynt að temja mér að vera með augun fram á veginn og minna í baksýnisspeglinum en fyrst hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson fór í baksýnisspegilinn ætla ég bara að minna á að það er stjórnarmeirihlutinn sem markar stefnuna. Það er hann sem ber ábyrgð á því að klára málin. Það að hér hafi ríkt mikil kyrrstaða í þessum málaflokki síðustu tvö kjörtímabil hið minnsta — það er ekki hægt að skella þeirri skuld á minni hlutann hverju sinni. Það er einfaldlega bara þannig að meiri hlutinn á þeim tíma var þannig saman settur að það gekk erfiðlega að koma málunum í gegn.
Ég var hér sem aðstoðarmaður formanns Viðreisnar á þeim tíma og man ekki eftir því að það hafi verið mikil tregða af hálfu minnihlutaflokkanna, alla vega ekki af hálfu míns flokks, þegar kom að orkuöflun en það voru svo sem kannski ekki mörg tækifæri til þess að ræða það. Málin fóru ekki mikið út úr ríkisstjórninni eða út úr þingflokkunum. Sögulega séð er það nú bara þannig að nú erum við með ríkisstjórn sem er samhent um þessi mál. Samsetning þingsins er sannarlega þannig að mér hefur fundist umræðan um orkuöflun og orkumál vera málefnaleg og góð. Við höfum náð miklum árangri hvort sem er í því að tryggja hér einföldun á regluverki eða annað. Við erum búin að klára tvo rammapakka auk risafrumvarps um vindorku. Við erum áfram að ná árangri á þessu sviði á þessu þingi. Ég segi bara: Nýtum tímann og tökum höndum saman um að klára þessi mál. Það er ekki til eftirbreytni hvernig ákveðnir þröskuldar voru settir í tíð fyrri ríkisstjórnar varðandi t.d. orkuöflun á Vestfjörðum. Það er eitt af þeim málum sem við munum þurfa að vinda ofan af hér í þinginu, að mér skilst á þessu þingi, og ég hlakka til að takast á við það. En það er gott að halda því til haga hvar hv. þingmaður stendur og ég hef svo sem aldrei efast um hans heilindi í þessum málaflokki.