breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála.
Frú forseti. Ég hef ákveðnar taugar til Vestfjarða þannig að ég held mig bara við kjördæmi hv. þm. Maríu Rutar Kristinsdóttur. Það voru t.d. hugmyndir í Vatnsfirði um 30 MW aflgetu. Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á því máli? Var það ekki frekar leiðinlegt hvernig fór fyrir öllu því máli, a.m.k. eins og það var kynnt á síðasta kjörtímabili? Það hefði getað eflt sunnanverða Vestfirði gríðarlega. Og síðan hefði þessi möskun á kerfinu á Vestfjörðum getað hjálpað til, ef sá kostur hefði komið til. Það eru síðan fleiri kostir í stöðunni. Í Árneshreppi er stærsta hugmyndin, en síðan eru þarna tæplega 10 MW kostir til umræðu og eru komnir tiltölulega langt í ferli og geta vonandi orðið að veruleika. Ég tek undir það að við þurfum að nýta þetta kjörtímabil vel. Þessi gluggi sem er opinn núna, það er langt síðan svo hefur verið. Við vitum ekkert hvað gerist í framhaldinu. Við þurfum að nýta kjörtímabilið vel fyrir Ísland, fyrir landsbyggðina, út frá því hvernig mál eru að þróast og þeim tækifærum sem gefast akkúrat núna, miðað við hvernig tækniþróun hefur verið í heiminum varðandi gervigreind og gagnaver sem eru einn kostur. Ég er ekki að segja að við eigum að virkja Ísland fyrir gagnaver en það er góður kostur með annarri og fjölbreyttari raforkunotkun á Íslandi. Þetta er raunverulega það sem sá sem hér stendur berst fyrir.