breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála.
Herra forseti. Ég ætla að þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir sína ræðu; hún fór hér yfir margt. Ég ætla hins vegar að færa umræðuna akkúrat að þessu frumvarpi og tala kannski minna um rammaáætlun eða það sem að því snýr því að það er auðvitað ekki það sem fjallað er um í frumvarpinu. Ég hef hins vegar meiri áhuga á — og mér fannst ræðan góð að því leyti til að þingmaðurinn var í raun með kastljósið á sínu kjördæmi og velti upp ýmsum möguleikum þar sem ég held reyndar að séu til staðar. Það skiptir auðvitað máli hvernig þeir eru útfærðir og það er ekki endilega algerlega tryggt í þessu frumvarpi hvernig því reiðir af. Ég ræddi m.a. við hæstv. ráðherra í þeim efnum um það sem sneri að reglugerðarheimildunum og hvernig við viljum t.d. innleiða eða hækka prósentur af íblöndunarefni því það getur auðvitað haft áhrif á kostnaðarþáttinn. Við vitum að mjög margt af þeim flutningum, t.d. frá Vestfjörðum, er á bílum sem brenna jarðefnaeldsneyti og það gæti þá haft áhrif á kostnað.
Ég ætla einnig að vekja athygli þingmannsins á því að það er að mínu mati eitt orkusamfélag eða samfélag sem smellpassar í þetta mál og það er iðnaðarstarfsemin á Grundartanga. Þar er einmitt margt af þessu sem verið er að ræða hér sem skiptir gríðarlega miklu máli og eru kjörin tækifæri til ef rétt er á málum haldið og við náum að vinna úr þeim tækifærum sem þar eru.
Mig langar til að heyra um afstöðu þingmannsins gagnvart öðrum orkuauðlindum en jarðvarma og raforkuframleiðslu, hvernig hægt væri að nýta þær auðlindir sem eru á Vestfjörðum, t.d. eins og í lífmassa; nú erum við t.d. að reka fiskeldi þar og mikið af lífmassa fellur til. Hvernig væri hægt að nýta slíkt til orkuframleiðslu?