fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra Eyjólfi Ármannssyni fyrir hans framsögu um málið. Þetta er í sjálfu sér mikilvægt mál og leynir ansi hressilega á sér varðandi það. Mig langar bara að koma beint inn á það sem ég var að hugsa rétt í þessu. Við tókum mikla umræðu um fjarskiptalögin í tvo, þrjá þingvetur og lögin voru samþykkt síðast árið 2022. Það var mikil endurskoðun sem fór fram þá og það var mikil umræða um 78. gr. þess frumvarps [Kliður í þingsal.] og ég sé ekki að það sé neitt átt við það í þessu frumvarpi.
Sá sem hér stendur hefur komið með fyrirspurnir sem tengjast 78. gr. á undanförnum vikum til flestra ráðuneyta og við hv. þingmenn þess tíma héldum svolítið að við værum raunverulega að leysa málin varðandi fjarskiptakerfin okkar og hvernig þau væru uppbyggð og íhlutir í fjarskiptabúnaðinn.
Á þessu stigi, við vinnslu þessa frumvarps og endurskoðun núna, var 78. gr. eitthvað skoðuð við gerð frumvarpsins út frá þjóðaröryggi og hvernig fjarskiptakerfi þjóðarinnar eru byggð upp? Mig grunar að okkur hafi ekki tekist fullkomlega það sem við ætluðum okkur fyrir fjórum árum, sem var að verja þjóðaröryggishagsmunina um fjarskipti þjóðarinnar. Mig langar að byrja á að spyrja að þessu, spyrja hæstv. ráðherra um 78. gr., hvort eitthvað hafi verið fengist við hana núna þegar þessar breytingar verða á fjarskiptalögum.