158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

fjarskipti o.fl.

281. mál
[16:33]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið, spurninguna. Það eru engar breytingar í frumvarpinu um þessa grein, þ.e. 78. gr. um öryggi fjarskipta. Hún var ekki skoðuð við undirbúning þessa frumvarps en eins og kom fram í ræðu minni er grein varðandi þagnarskyldu vegna varaleiða í fjarskiptum. Ég tel það vera mjög mikilvægt og það er eitthvað sem við munum skoða áfram, þá í gegnum gervihnetti eða með öðrum hætti. Við erum með þrjá sæstrengi sem tengja landið við útlönd og vonandi mun þeim fjölga. Ég veit að þeim mun fjölga á næstu árum, svo sannarlega, en það er mjög mikilvægt líka að hafa gervihnattasamband. Vandamálið þar er þó að það er takmarkaðri bandbreidd, afkastagetan er minni en gervihnettir eru svo sannarlega að koma sterkir inn og munu koma enn þá sterkari inn á næstu árum, ég tala nú ekki um þegar G6 kemur, þegar þar að kemur.