fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Ég vil þá bara hvetja hv. umhverfis- og samgöngunefnd sem fær málið til umfjöllunar til að skoða þetta vel í góðu samráði við ráðuneytið, það sem snýr að þessu. Spurningin er raunverulega hversu vel þessi löggjöf, og hvernig farið er með þetta mál, standist viðmið Atlantshafsbandalagsþjóðanna og stöðlun í því samstarfi sem þar er, hvort það megi raunverulega efla þennan þátt í 78. gr. Við héldum að við værum að eiga gott mót þarna fyrir fjórum árum eftir gríðarlega mikla umræðu sem, eins og ég segi, ég held að hafi tekið 2–3 ár, tvo, þrjá þingvetur. En ég er ekki viss, eftir að hafa farið í gegnum þetta mál, hvort það sé raunverulega svo. Mig grunar að við a.m.k. stöndum svolítið langt að baki stærstum hluta þeirra þjóða sem eru hluti af Atlantshafsbandalaginu í því sem er nauðsynlegt að fara í gegnum. Þá er ég að tala bara um hvernig fjarskiptakerfið er uppbyggt, búnaðurinn sem byggir upp þessi kerfi. Hvernig tekur hæstv. ráðherra í það að nota ferðina að þessu sinni til að a.m.k. ígrunda hvort við getum styrkt þetta enn frekar þannig að við séum á sömu línu almennt og Atlantshafsbandalagsþjóðirnar, að við séum ekki veikur hlekkur í starfsemi bandalagsins?