158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

fjarskipti o.fl.

281. mál
[16:43]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Auðvitað verður þetta rýnt betur í nefndinni. Sjálfur skil ég reyndar svona uppleggið í frumvarpinu ekki þannig að þetta verði valkvætt fyrir notandann sjálfan heldur þá fjarskiptafyrirtækið en það er gerður áskilnaður, eins og kemur fram í textanum, um að þessarar skimunar sé getið í notendaskilmálum. En hér er sem sagt verið að víkja svolítið frá þessari reglu um fjarskiptaleynd og ég er þeirrar skoðunar að við eigum alltaf að fara varlega. Það kann auðvitað að vera nauðsynlegt í ákveðnum tilfellum en þá skiptir máli að við gætum að því að það sé einhver sem einmitt gætir varðanna. Þannig að kannski það sem ég er að velta fyrir mér er hvaða tryggingar við höfum fyrir því bara að lögmæt einkaskilaboð verði ekki stöðvuð eða nýtt í öðrum tilgangi. Þetta eru kannski svona almennu atriðin.

Að lokum vil ég kannski í mínu síðara andsvari spyrja hæstv. ráðherra varðandi sektarákvæðin og þær breytingar að færa brot gegn VII. kafla fjölmiðlalaga, ef ég má, undir sektarákvæði fjarskiptalaga sem opnar á mjög íþyngjandi og harkaleg sektarúrræði, allt upp í 4% af heildarveltu ef ég man rétt. Ég vil í því sambandi vísa í umsögn Samtaka iðnaðarins til Alþingis þegar málið var hér til umræðu á síðasta þingi þar sem þau sögðu að einmitt þessi ákvæði VII. kaflans, sem lúta að flutningsskyldu og flutningsreglu, væru í eðli sínu mjög flókin og hefðu í framkvæmd reynst háð túlkun eins og dómaframkvæmdin ber með sér og því skipti, sérstaklega við slíkar aðstæður, miklu að viðurlagaramminn væri skýr og fyrirsjáanlegur, hóflegur.