158. löggjafarþing — 24. fundur,  2. nóv. 2026.

fjarskipti o.fl.

281. mál
[16:48]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Þetta hefur verið áhugaverð umræða um fjarskiptamál og í raun og veru erum við hér að fjalla um mál sem er að einhverju leyti endurflutt, kom hér inn á vorþingi í stærri mynd. Þá voru sæstrengir og fleiri atriði í sama máli og mér skilst að þessi mál verði núna sundurgreind að einhverju leyti og ég fagna því. Það einfaldar svolítið vinnu nefndarinnar þegar kemur að því að vinna þetta mál. En fjarskipti, eins og við höfum verið að ræða hér í dag, eru orðin svo samofin okkar daglega lífi að við tökum þeim oft sem sjálfsögðum hlut. Við notum þau til samskipta, viðskipta, bankaþjónustu, vinnu og til að nálgast upplýsingar. En um leið og samfélagið verður sífellt stafrænna þá aukast þær ógnir sem fylgja þessari þróun. Ég hef svolítið fundið fyrir því í vinnslu nefndarinnar, þegar við erum að ræða fjarskiptamál, að þetta er líklega sá málaflokkur sem er hvað næst okkur í hinum fýsíska heimi. Þá meina ég bara að við höldum á símanum okkar alla daga, við erum í tölvunni, við eigum samskipti í gegnum tölvupósta og allt þetta sem átti víst að einfalda líf okkar en hefur samt, að ég held, gert það svolítið flóknara. En það að skilja síðan regluverkið á bak við fjarskipti, það að skilja út á hvað þetta gengur allt saman — ég viðurkenni að stundum fallast manni svolítið hendur. Þetta eru flóknir lagabálkar. Þetta er svona einhvers konar heimur sem er ekki áþreifanlegur en hann er samt sem áður svo nærri okkur öllum. Þess vegna er mikilvægt að mínu mati að löggjöfin þróist í takt við tímann og að stjórnvöld og fjarskiptafyrirtæki hafi skýrar heimildir og viðeigandi verkfæri til að bregðast við nýjum áskorunum. Frumvarpið tekur á nokkrum mikilvægum þáttum sem snúa að öryggi fjarskipta, vernd almennings og ábyrgri nýtingu fjarskiptainnviða og ég ætla hér í minni ræðu að staldra við þrjú atriði.

Í fyrsta lagi er það baráttan gegn netsvikum. Við höfum á undanförnum árum séð mikla aukningu í svikaskilaboðum, fölsuðum vefsíðum þar sem einstaklingar eru blekktir til að afhenda fjárhagsupplýsingar eða millifæra fjármuni. Það er mjög algengt núna að vörur séu t.d. seldar á samfélagsmiðlum í svikaskyni. Ég veit að miðaldra konur eru oft ginnkeyptar fyrir alls konar húðvörum og öðru og ég hef heyrt af því að til sölu séu alls konar vörur sem hljóma rosalega vel en svo koma vörurnar aldrei á staðinn, koma aldrei með pósti. Það er bara búið að taka peninga af fólki og jafnvel kortaupplýsingar og annað sem liggja þar á bak við. Þetta er ekki eitthvert jaðarvandamál. Þetta er ákveðin ógn við neytendur og samfélagið í heild og neytendavitund okkar; að átta okkur á því í þessum heimi í dag hvað er raunverulegt og hvað er ekki raunverulegt, hvað er fals og hvað ekki, sem er nú efni í langa ræðu.

Það er því mikilvægt að fjarskiptafyrirtækjum sé heimilt að skima SMS-skilaboð með sjálfvirkum hætti og að hægt verði að grípa hraðar inn í þegar svikasíður eru notaðar til að blekkja almenning. Umræðan hér áðan um 7. gr., og þær vangaveltur sem hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson kom hér með, er auðvitað mikilvægt sjónarmið í þessu skyni. Hvar tryggjum við friðhelgi einkalífs og hvernig tryggjum við það líka að vernda neytendur gagnvart svikum og prettum? Ég veit að þetta eru sjónarmið sem tekist verður á um í nefndinni en markmiðið hlýtur samt að vera að færa varnirnar framar í ferlið. Við eigum ekki bara að bregðast við eftir að fólk hefur orðið fyrir töluverðu tjóni heldur líka að koma í veg fyrir að svikin nái fram að ganga.

Mig langar líka að undirstrika að að mínu mati skiptir miklu máli að tryggja friðhelgi einkalífsins og auknar heimildir til skimunar verða að vera skýrt afmarkaðar, gagnsæjar og í samræmi við persónuverndarlöggjöfina. Það þarf að vera skýrt að um sé að ræða sjálfvirka skimun, ekki almenna heimild til að fylgjast með einkaskilaboðum fólks og að það sé ekki mannleg íhlutun sem eigi sér stað heldur séu þetta, eins og hæstv. ráðherra fór hér yfir, einhvers konar mynstur sem séu greind með rafrænum hætti. Traust almennings á stafrænu samfélagi byggist ekki aðeins á því að við getum varið fólk gegn svikum heldur líka á því að fólk geti treyst því að réttindi þess séu virt.

Hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson fór hér áðan yfir umsögn Samtaka iðnaðarins sem hafa sannarlega verið ötul við að skila inn sínum umsögnum um þessi mál. Við gestakomu í málinu í fyrra og núna í öðrum málum sem tengjast fjarskiptum höfum við einmitt verið að reyna að átta okkur betur á þessum heimi og hvernig við getum skilið betur eðli þessara samskipta og hvernig við getum tryggt með regluverkinu að við séum að vernda neytendaréttinn en á sama tíma að vernda friðhelgi einkalífs.

Í öðru lagi langar mig aðeins að ræða öryggi og nýjar tækniógnir og heimildir stjórnvalda til að bregðast við ógn af völdum ómannaðra loftfara og annars búnaðar sem getur ógnað almannaöryggi. Við vitum að tæknin hefur þróast hratt og drónar eru orðnir aðgengilegir almenningi og fyrirtækjum. Þeir geta nýst við fjölbreytt verkefni en geta líka skapað hættu og m.a. fyrir mikilvæga innviði, öryggissvæði og öryggi fólks. Það er því eðlilegt að stjórnvöld hafi viðeigandi úrræði til að bregðast við slíkum aðstæðum. Það voru fréttir í fyrra af grunsamlegri drónaumferð víða um Evrópu og við vitum að þegar kemur að fjölþáttaógnum er þetta eitt af því sem við þurfum að hafa augun á. En þá skiptir auðvitað líka máli að jafnvægið sé rétt stillt og heimildir til að trufla fjarskipti eða grípa inn í notkun tæknibúnaðar þurfa að vera skýrar og afmarkaðar og háðar ábyrgri beitingu. Við viljum tryggja öryggi en jafnframt koma í veg fyrir að víðtækar heimildir séu nýttar umfram það sem nauðsynlegt er.

Í þriðja lagi langar mig að ræða aðeins um ábyrga nýtingu fjarskiptatíðna, þ.e. breytingar á gjaldtöku fyrir afnot af fjarskiptatíðnum. Eitt af því sem ég er búin að vera að læra í umhverfis- og samgöngunefnd er hið svokallaða tíðniróf. Það er auðvitað takmörkuð auðlind sem er mikilvæg forsenda nútímafjarskipta og það er eðlilegt að þeir sem nýta þessa auðlind í atvinnuskyni greiði fyrir afnotin og að gjaldtakan taki mið af kostnaði við stjórnun og eftirlit. Það er samt mikilvægt að gjaldtakan sé fyrirsjáanleg og sanngjörn, líkt og ráðherra fór yfir í sinni framsögu og við þurfum að tryggja að hún verði ekki óþarfa hindrun fyrir fjárfestingu, nýsköpun eða uppbyggingu fjarskiptainnviða. Fjarskiptamarkaðurinn þarf skýrar leikreglur en jafnframt aðstæður sem styðja við þróun og tækniframfarir.

Forseti. Að lokum vil ég nefna mikilvægi þess að tryggja öryggi fjarskiptakerfa ríkisins og viðbragðsgetu þegar neyðarástand skapast. Við höfum séð hversu mikilvægt er að fjarskipti virki þegar á reynir. Þau eru forsenda þess að stjórnvöld geti brugðist við, að neyðarþjónusta geti sinnt verkefnum sínum og að upplýsingar berist hreinlega til almennings. Ég man t.d. að í síðustu kjördæmaviku vorum við mikið að ræða fjarskiptamálin. Fjarskiptamálin eru svo sem mikið rædd í mínu góða kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, vegna skorts á ákveðnum innviðum þar. Og í tengslum við það að slökkt var á 2G- og 3G-netinu hafa verið háværar raddir um að það skipti miklu máli að koma málum aftur í fyrra horf og tryggja að almenningur hafi hreinlega aðgang að fjarskiptum, hvort sem er á stofnvegum eða annars staðar.

Ég fagna fréttum sem ég sá nú í dag af hæstv. iðnaðarráðherra þar sem hann var að gera samninga um bætingu á fjarskiptainnviðum á Vesturlandi og á Vestfjörðum. Það er algjört öryggismál að fólk komist í samband við umheiminn, hvort sem verið er að tala um aðgang að netbankanum eða að 112 ef eitthvað kemur upp á á stofnvegum landsins. Þess vegna þarf líka að huga að viðnámsþrótti kerfanna, öryggi þeirra og mögulegum varaleiðum ef hefðbundin fjarskipti rofna. Í kjördæmavikunni var einmitt talað um óveðrið mikla sem varð í desember 2019. Þar voru sveitarstjórnarmenn og aðrir á Norðurlandi vestra að lýsa hryllingnum sem vofði yfir þegar öll fjarskiptakerfin voru úti, hvernig við færum hreinlega að því að tryggja aðföng eða annað þegar við höfum ekki samband hvert við annað. Við þurfum líka að nefna sæstrengina og samband okkar við umheiminn. Við erum eyja nyrst í Atlantshafi og eigum allt okkar undir því að stafrænir innviðir séu í lagi, að viðnámsþrótturinn sé styrkur og að við séum svolítið með augun á boltanum hvað þetta varðar.

Forseti. Það sem sameinar þessa þætti frumvarpsins er að við erum auðvitað að bregðast við breyttum veruleika. Stafræn þróun skapar mikil tækifæri en hún kallar líka á skýrari leikreglur, aukið öryggi og ábyrgari stjórnsýslu. Við þurfum að tryggja að fólk geti treyst fjarskiptakerfinu, að fyrirtækin geti starfað við öruggar aðstæður og að stjórnvöld hafi þau úrræði sem þarf þegar öryggi þeirra er ógnað. Um leið megum við aldrei gleyma því að aukið öryggi má ekki verða til þess að gengið sé lengra en nauðsynlegt er í skerðingu á friðhelgi einkalífsins. Það er auðvitað þetta jafnvægi sem við þurfum að tryggja í allri nútímalöggjöf um fjarskipti. Ég hlakka til að takast á við þetta mál í hv. umhverfis- og samgöngunefnd og vænti þess að þar komi umsagnir um þau atriði sem hér hafa verið rædd í dag. Ég hlakka til að takast á við umræðuna í nefndinni.