fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur fyrir prýðisræðu. Ég tek undir að það er gríðarlega mikilvægt að hér séu nútímaleg fjarskiptalög. Fjarskiptin breytast alveg skelfilega hratt á alla kanta og þótt það séu bara fjögur ár síðan síðasta endurskoðun fór fram þá er það bara töluverður tími þegar við erum að ræða fjarskipti. Hér hefur verið aðeins umræða í dag um dróna, svo maður taki nú eitthvað út úr þessu. Það sem við sáum þegar innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022 og skoðum stöðuna í dag og hvað er búið að gerast í drónatækni á ekki lengri tíma en fjórum og hálfu ári þá er hún undraverð. Ég man bara að á NATO-þinginu þar hefur verið töluverð umræða um dróna og gervigreind mjög langt aftur, mun lengur en hún hefur kannski almennt verið í gangi. Sá sem hér stendur skrifaði skýrslu 2022 um „future warfare“ eða framtíðarstríð innan NATO-þingsins. Þá vorum við að ræða drónana, hvað gerist í langri framtíð sem er allt búið að gerast nú þegar á fjórum árum. Ég fer kannski betur í það í ræðu á eftir.
Mig langar bara rétt að koma inn á að hv. þingmaður er formaður umhverfis- og samgöngunefndar sem þetta mál gengur til og vil, eins og ég kom inn á í ræðum við hæstv. ráðherra málaflokksins, beina því til formanns nefndarinnar að taka sérstaka skoðun á 78. gr. og því sem við héldum að við værum að leysa allt árið 2022, 15. júní, þegar við samþykktum lögin eftir gríðarlega mikla umræðu sem fyrst og fremst var um 78. gr. Ég held að það sé gott og gilt. Ég veit ekki hversu margir af þeim þingmönnum sem eru í dag í umhverfis- og samgöngunefnd hafi tekið þátt í þeirri umræðu og þekki málið en það er erfitt að rifja það upp, það er svo stórt og mikið í allri umgjörð.