fjarskipti o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og vangavelturnar. Það er alveg rétt að fjarskiptalögin — eða sem sagt það skiptir máli að vera með augun á boltanum. Tækninni hefur fleygt svakalega fram á mjög stuttum tíma og líkt og hv. þingmaður fór yfir er skýrsla frá 2022, þar sem verið er að tala um eitthvað sem er langt í burtistan. Það er ótrúlegt að fylgjast með hvernig gervigreindin hefur þróast. Ég man að þegar dóttir mín fæddist 2023 þá sá ég gervigreindarlíkan í fyrsta skipti og vinkona mín var að sýna mér hvernig maður getur á ótrúlegan hátt skoðað hvað eru öryggisvænustu og bestu fjölskyldubílarnir eða bílstólarnir, ég man ekki hvað það var sem ég var alltaf fyrir mér en mér fannst þetta alveg klikkuð tækni þá og tala nú ekki um hvað er mögulegt í dag og einmitt í samhengi við dróna, í samhengi við fjölþáttaógnir, í samhengi við það hvers konar líkön eru í bígerð núna. Ég nýtti einhverja flugferð á dögunum í að horfa á heimildarmynd á Netflix um gervigreindina og hún er nú hálfógnvænleg að einhverju leyti líka. Þannig að öll tækni getur haft bjartar hliðar og líka dökkar hliðar og við þurfum að hafa augun á boltanum hvað það varðar.
Varðandi 78. gr., þá fletti ég nú bara upp þessari grein á meðan hv. þingmaður var í andsvari við hæstv. ráðherra til þess að glöggva mig á því um hvað ræðir og skal að sjálfsögðu skoða málið og það verður nú áhugavert kannski að taka jafnvel eins og einn góðan kaffibolla með hv. þingmanninum og fá aðeins söguskýringu á því hvað gekk á hér í þinginu á síðasta kjörtímabili. Það er auðvitað þannig að það var mikil endurnýjun á þingi núna milli kosninga og það vonda við það er að þekking getur tapast, þannig að það skiptir miklu máli að halda þessum hlutum til haga. Þótt þingmönnum gangi gott eitt til við breytingu laga á einhverjum tímapunkti þá getur auðvitað gerst að eitthvað falli á milli skips og bryggju og ég skal bara taka kaffibolla og skoða þessi mál.